Skinfaxi - 01.03.1931, Síða 21
SKINFAXI
65
arliús. Murnli ókunnugum ganga seint að rata um
alla þá krókastíga. — Yið komum fyrst i allstóra
hvelfingu, sem er einskonar miðstöð námunnar. Út
frá henni liggja ýmsar vistarverur og í þeim er kom-
ið fyrir skrifstofum, rafmagnsstöð, loftciælum, liorð-
stofu, áhaldageymslu, smiðju o. s. frv. Allt þelta
svæði er raflýst og á skrifstofunni logar í kolaofni.
Loftið þarna niðri er sérlcga hreint og gott, enda
eru loftdælur jafnan að verki, sem endurnýja loflið.
Yið spyrjum hve langt sc út úr námunni og svarið
er: Um 21/? km. út um göngin, en 340 m. upp á yfirhorð
liæðarinnar. Hér fór þó ekki aðalnámugröfturinn
fram nú, heldur 690 metrum neðar. Vildum við kom-
ast þangað, en þar sem síðasta lestin átti að fara út
eftir 10 mínútur var ekki timi til þess, þvi að síður
vildum við gista þarna um nóttina, þó að engan veg-
inn gæti það kallast óvistlegt. — Námugröfturinn
fer fram á þann hátt, að í hergið er borað með raf-
magnsborum og siðan sprengt og þannig haldið
áfram að grafa og sprengja ár eftir ári, ávalt lengra
og dýpra, i ýmsar áttir, eftir þvi sem silfuræðarnar
liggja um bergið. — Kl. 5 setjumst við aftur upp í
vagnana, ásamt verkamönnunum og brunum með
hraða miklum út lir þessum myrkrastöðum, til ljóss-
ins. Við liöfðum verið 1% tíma í þessari námuför
og undarleg voru viðbrigðin, að koma úr röku og
köldu loftinu og öllu myrkrinu. Það var eins og við
kæmum i annan heim. Við spurðum verkamennina,
hvort þeir finndu ekki til þessa sama. Þeir gerðu lít-
ið úr því, kváðust vera orðnir þessu svo vanir, bæði
myrkrinu og umskiftunum er út kæmi, að þeir tækju
eftir hvorugu verulega. Þannig er vaninn.
Næsta morgun skoðuðum við myntsláttu-verk-
smiðju norska ríkisins, sem einnig er i Kóngsbergi.
Að vísu var ekki unnið þar á þessum tíma, þvi að
þar er aðeins unnið á veturna, en vélar allar og að-