Skinfaxi - 01.03.1931, Síða 23
SKINFAXI
67
hann aldrei allan, vegna hamrastalla. — Vegurinn
ofan af brúninni og niður i dalinn er sá lirikaleg-
asti og ægilegasli, sem við fórum á allri leiðinni.
Liggur hann i ótal bugðum niður snarbratt fjallið
og ekki óvíða eru sprengd göng gegnum hainrahöftin.
Sé litið niður, er aðeins að sjá eftir snarbröttum
hamraveggnum niður i dalbotninn, þar sem áin belj-
ar í hamraþrönginni. — Þegar niður eftir dalnum
kemur,, fer byggðin að aukast og jafnvel smáþorp
eru á stöku stað, en viðast er dalurinn þröngur og
há fjöll livert sem litið er. Eftir nokkra stund erum
við komin i litið þorp niður við sjó. Billinn stöðvast
og hér skal taka náttstað, því að þetta er Eidfjord.
Við erum komin til Harðangurs! Það er mjög róm-
að, hve fallegt sé i Harðangri, og sú fjú-sta sýn, er
við okkur blasti, er við komum til Eidfjord, varð
okkur engin vonljrigði. Fjörðúrinn spegilsléttur með
skógivaxin fjöll á allar liliðar, en græjiir akrar að
baki. Kvöldið er yndisfagurt og sólin slær töfraljóma
á umhverfið. Við húum í stóru gistihúsi, sem er upp-
lýst með kertum og olíuljósum! Það var líka til-
hreyting.
Morguninn' eftir sigldum við af stað kl. 9. Förum
fyrst úl Eidfjord sem er alstaðar fallegur. í Utue skift-
um við um skip, og er síðan haldið áfram og inn í
Surfjord (Suðurfjörð), sem einnig er liæði fallegur
og hrikalegur, með háum fjöllum á háðar liendur,
skógi vöxnum upp í miðjar idiðar en snævi þakin
þar fyrir ofan, ]>ótt kominn sé 10. ágúst. Til Odda
komum við kl. 2Yz og dvöldum þar til næsta morg-
uns. Sjálfur bærinn er ekki óviðkunnanlegur og um-
hverfið er tilkomumikið. En Oddi er verksmiðjubær
með áhurðar- og karbid-verksmiðjum o. 11., og þess-
ar verksmiðjur hafa mótað íbúana svo greinilega,
að hvergi sá eg neitt því líkt. Þar gat átakanlega að
líta, hver áhrif stóriðjan hefir á sálarlif og mannsbrag