Skinfaxi - 01.03.1931, Blaðsíða 24
68
SKINFAXI
þeirra, sem við verksmiðjur vinna og hvað auðnu-
laust og ræfilslegt slíkt fólk verður að útliti og fram-
komu, sem um ekkert æðra hefir að liugsa, en að
vera hluti af þeim vélum, sem það vinnur við. Meg-
um við fslendingar þakka forsjóninni, að sú ógæfa
hefir enn eigi hent þjóð vora, að eignast stóriðju,
sem gerði okkur að jafn stóriðjumótuðum auðnuleys-
ingjum eins og flestallt fólkið í Odda har með sér.
Vinarkveðja.
Skömmu eftir að Noregsfarar komu heim i sumar, sendi
sambandsstjórn veglega kveðju til Noregs ungdomslag. Var
það stór Ijósmynd af Alþingishátíðinni, í umgerð, og hafði
Steindór Björnsson skrautritað á hana kveðju frá U. M. F. í.
Nýlega hefir komið bréf frá norsku sambandsstjórninni, með
þakklæti fyrir gjöf þessa. Þar stendur m. a.: „Myndin hefir
fengið heiðurssess í skrifstofu vorri og mun ætíð verða oss
kær minning um frændþjóð vora í vestri og Alþingisstaðinn,
miðdepil þeirra söguríku minninga, sem margir af oss þekkja
úr íslendingasögum. Berið æskulýð íslands hjartanlega kveðju
vora og ósk um góða samvinnu í framtíðinni.“
Nýtt lag.
Það er talið sanna lífsgildi Ijóða, ef þau ná útbreiðslu og
verða almenningseign, án þess að vera birt né básúnuð. Sama
gildir vafalaust um sönglög. Fyrir tveimur árum var nýtt
sönglag eftir G u ð m u n d u N i e 1 s e n sungið á samkomu á
Eyrarbakka. Dagana á eftir heyrðist lag þetta raulað næst-
um þvi hvar sem komið var á Bakkanum. Nú hefir G. N.
gefið lagið út. Það heitir Lækurinn og er við vísur eftir
Gisla Ólafsson á Eiríksstöðum. Má telja því vísar vinsæld-
ir alþýðu.
Lag þetta fæst ekki í bókaverzlunuin úti um land, en höf.
óskar eftir, að U. M. F. taki það til útsölu, gegn sölulaun-
um. Þau félög, er sinna vilja þessu, eru beðin að tilkynna
það ungfrú Guðmundu Nielsen, Aðalstræti 9, Rvik.
Áður hefir G. N. gefið út sönglagasafn: Ljóðalög. Hún
hefir ort lag við íslenzka skátasönginn, og er það prentað
í Skátabókinni.