Skinfaxi - 01.10.1931, Blaðsíða 16
144
SIvlNFAXI
Gliins över sjö og strand
stjarna i fjarran ....
Eiga skáldin íslenzku ekkert af þeim hressandi vor-
blæ og gróðurilmi, sem andar úr ljóðum Jeppe
Aakjers?
Ungmennafélagar! Hér er land að nema. Ekki að-
eins fyrir „spámennina“, heldur líka hvern einasta
íslending, sem á ríkar tilfinningar og glögga sjón
heilhrigðrar æsku.
Sigtúnum, 11. júlí 1931.
Þóroddur Guðmundsson.
Endurminning.
Hinn G. janúar lí)06 var U.M.F. Drífandi undir
Eyjafjöllum stofnað.
Meðal stofnenda þess, sem alls voru 30 menn, voru
þrír fullorðnir liændur, sem nú eru látnir, þeir Jón
Sveinbjarnarson á Ásólfsskála, Sigurður Sigurðsson
á Seljalandi og Vigfús Bergsteinsson á Brúnum.
Forgöngumaður fyrir stofnun félagsins, var Sigurð-
ur, og hann og Jón, er voru eldfjörugir gáfumenn,
liöfðu slerkan liug á menningu æskunnar, örfuðu
okkur, liina yngri, tiJ framfara og félagsskapar. Væri
vert að minnast allra þessara manna rækilega, en
þar sem hinn þriðji þeirra kemur hér einkum við
sögu, verður þetta að nægja, því að í mjög takmark-
aðri grein er það alls ekki hægt. Þó skal þess getið,
að öllum var þeim það sameiginlegt, að þeir eltust
ekki andlega að sama skapi sem árin færðust yfir þá.
Yngstur þeirra var Vigfús á Brúnum. Hann and-
aðist siðastliðið jóladagskvöld á 68. aldursári.