Skinfaxi - 01.04.1932, Side 8
60
SKINFAXI
kennslu í svarllist (radering), en hún var þá óþekkt
hér heima, og nam G. hana einkum i þvi skyni, að
flytja hana heim.
íslenzki leirinn hafði vakið athygli Guðmundar þeg-
ar i bernsku, svo sem að framan segir. Dafnaði snemma
hjá honum sú trú, að islenzkur leir væri engu verri
en erlendur, til ýmsra smiða, en nú hefir liann gert
þessa trú að vissu, sem kunnugt er. í Munchen tók
hann að nema leirkerasmið og leirbrennslu, jafnliliða
öðru listnámi. Lærði liann listiðn þessa til fulls. Má af
öllu þessu marka, að verið hefir fullhlaðið á tímann.
Einu sinni skrapp Guðmundur heim i sumarleyfi,
árín sem hann dvaldi í Munchen. Það var 1923. Þá var
hann 5 vikur uppi á Kili, aleinn, og hafðist við i tjaldi.
Var það honum livíld frá námsstriti og borgarglaum
erlendis, en jafnframt líkamleg þjálfun og andleg end-
urnæring. — Þetta sumar tók liann og þátt í sýningar-
för, er flokkur úr íþróttafélagi Reykjavíkur fór til
Norðurlands. Var farið norður á skipi, en gengið suður
fjöll. Hefir G. skrifað um ferðina i nýútkomið „Aldar-
fjórðungs minningarrit I. R.“
1925 hafði G. lokið námi sínu í Múnchen. Hugðist
hann nú svala útþrá sinni rækilega, áður lieim væri
haldið, og lagði upp í sjö mánaða ferðalag. Hélt hann
fyrst suður um Balkanlönd, til Litlu-Asíu, og þaðan
lil Grikklands. Flakkaði liann um Eginarhaf á flutn-
ingaskipi, og lofar mjög greiðvikni og geslrisni skip-
verja og eyjabúa. Fór hann þá til Sikileyjar og svo
norður alla Ítalíu. Tók sú för liálfan annan mánuð.
Þá ferðaðist hann um Sviss og Frakkland, til Lund-
úna, og þaðan norður endilangt Stóra-Bretland, alll
á norðanvert Skolland. Ósvaldur Knudsen, málari og
fimleikamaður, var með honum á ferðalagi þessu.
Þegar Guðmundur var heim kominn, eftir langa ut-
anvist og ferðir miklar, efndi hann lil sýningar i
Reykiavík. Sýndi hann 25 myndir frá ferðum sínum,