Skinfaxi - 01.04.1932, Síða 16
68
SKINFAXI
Glatt var ]),jóð á þingi,
])rek og fjör á kreiki,
þegar þróttar-slygnir
þreyttu fornmenn leiki. —
Enn er glíman islenzkt þjóðargaman,
ennþá snarpl og fjörugt gripið saman;
stæltir vöðvar, fjör og táp i taúgum,
trú og dyggð í sigurfránum augum.
Lifi lisl og snilli
löngu horfnra tíða.
Glíman haldi hylli
hugum-stórra lýða.
Kappi’ og forsjá krappan ieik vér heyjum,
knáum tökum, mjúkum liða-sveigjum.
Komi jafnan krókur móti bragði,
karskur sveinn þá ber af hverju flagði.
Glímusöngurinn.
í 8. hefti Skinfaxa f. á. var birtur snjall glímusöngur eftir
Sigurð skáld Jónssoii á Arnarvatni. Nú hefir Sigvaidi S. Kalda-
lóns tónskáld gefið ungmennafélögunum lag við kvæði Sig-
urðar, og er það birt hér að framan. Er þess að vænta, að það
verði sungið sem víðast, þar sem ungir og hraustir íslending-
ar koma saman til leika. Ekkert tónskáld vort hefir náð jafn-
ahnennri hylli og Sigvaldi Kaldalóns, svo vel hefir honum
tekizt að túlka íslenzka þjóðarsál í lögum sínum. Er því æsk-
unni vafalaust fagnaðarefni, að eignast lag eftir hann, við
kvæði um glímuna, sem er íslenzkust allra íþrótta.
Tónskáldið hefir gert lagið við 1., 4. og 5. erindi kvæðisins,
og eru þau prentuð hér með laginu.