Skinfaxi - 01.04.1932, Blaðsíða 23
SKINFAXJ
75
Áhugamál íslenzkrar æsku.
(Ritstj. Skinfaxa hét verðlaunum fyrir beztu ritgerð, er hon-
um bærist fyrir sumardag fyrsta, um áhugamál í s-
1 e n z k r a r æ s k u, enda væri höfundur eigi eldri en 21
árs. Einar tvær ritgerðir komu, og eru þær prentaðar hér á
eftir. Helgi Vigfússon, formaður U. M. F. Hvatar í Grímsnesi,
er 20 ára, en Daníel Ágústinusson, gjaldkeri U. M. F. Eyrar-
bakka, er 19 ára, og hefir þó veriS ungmennafélagi í 10 ár. —
Báðum höfundunum eru send verðlaun þau, sem lofað var.)
I.
Öll þráum við vorið, ljósið og ylinn, sem eru trygg-
ir förunautar þess. Vorið er lílca aflgjafi, sem lyftir
mörgum fögrum hugsjónum til flugs, inn að hjarta
einstaklingsins, og vorið er og verður ætið liið rétta
umhverfi einstaklingsins á morgni lífsins. Á æskuár-
unum þarf mjúk móðurhönd að móta leirinn, sem
enn er ekki fullharðnaður.
Aldrei riður einstaklingnum meira á umönnun en á
bernsku og æskuárunum. Þá er honum nauðsynlegt,
að sjóndeildarhringurinn sé fagur og samferðamenn-
irnir góðir; ef þetta fylgist að, eru miklar likur til, að
einstaklingurinn nái þeim þroska, sem er undirstaða
allrar þróunar — allra mannkosta. Því á æskuárunum
vaxa i sál einstaklingsins þær hvatir, er síðar mynda
örlagavef hans.
Framtíðin, með öllum sínum ráðgátum, gefur æsku-
manninum tækifæri til að beina huganum að þvi
óþekkta. Vorylur æskunnar hvilir þá svo undur létt
yfir öllu, og í iiuganum reisa menn liáar hallir, sem
hlasa við í vona- og draumalífi. Og það eru einmitt
draumarnir ■— framtíðardraumarnir, sem rcisa æsk-
unni mark til að stefna að, og áhugamál til að vinna
fyrir.
En livaða áhugamál ber iiver óspilllur æskumaðúr