Skinfaxi - 01.04.1932, Page 41
SIÍINFAXI
93
hress og syngjandi við vinnuna, er fullur af fjöri og
áhuga.
Ungmennafélögum er Freymóður góð fyrirmynd.
Hann elskar landið sitt og er óþreytandi að skýra fyr-
ir öðrum fegurð þess og göfgi. Hann lifir lífi hug-
sjónamannsins. Iíjörorð hans er: Lífið fyrir listina
og fagrar hugsjónir. Því er æfi lians hverjum v a x-
a n d i ungmennafélaga fyrirmynd.
Hekla.
Litli smaladrengurinn norður i Eyjafirði finnur
þróttinn i sjálfum sér, liann sér og skilur fegurð lífs-
ins, og hann stigur á stokk og strengir heit, að verja
kröftum sínum til að opna augu annarra manna fvr-
ir þcim fögru sýnum, sem hann sér sjálfur. Og hon-
um tekst það. Þegar aðrir livíla sig eða skemmta sér
við fánýta hluti, ]iá vakir hann og vinnur. Þegar aðr-
ir bugast af andstreymi og áhyggjum, þá syngur hann
í sig og aðra fjör og þrótt. Slíkir menn eru sigurveg-
arar. Þeir eru í hópi hinna brattgengu ungmenna ís-