Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.10.1932, Page 10

Skinfaxi - 01.10.1932, Page 10
SKINFAXI 134 Og þér, drengir og meyjar, sem nú hafið slitið barna- -skóm og eigið framundan yður æskuna, aldursskeið ótakmarkaðra möguleika! Takið við arfi kynslóðarinn- ar, sem var ung á undan yður, og verjið lionum eins og þér hafið manndáð til. Klæðið landið og knýið fram nýja endurfæðing íslenzkrar þjóðar. f yður ])ýr geysi- legur kraftur, sem unnið getur ótrúleg kraftaverk, ef hann er sameinaður í einn farveg. Ungmennafélögin eru yðar félög, og þau eiga að vera samtök yðar til góðra verka og stórra. „íslandi ríður á, að enginn sker- ist úr leik“ — nú og framvegis. II. Ræða Guðbrands Magnússonar. Fyrsta ungmennafélagið var stofnað á Akureyri ár- ið 1906. Þegar á næsta ári var stofnað Samband ungmenna- félaga íslands. Ungmennafélags-hreyfingin fór um landið líkast og eldur um sinu. Ekki var lagt fram fé til útbreiðslunnar. Og samt risu félögin upp í fjölmörgum byggðarlög- urn og að kalla jafnsnemma. Hvað olli! Hvað var liér að gerast? Þjóðin var að rétta úr kryppunni, eftir kýtinginn, sem hún var komin í fyrir margra alda yfirdrottnun erlendrar þjóðar, og þar af samfellda tveggja aldra áþján verzlúnareinokunarinnar. Öruggri forystu endurreisnarmannanna, allt frá dög- um Skúla fógeta, Fjölnismanna og Jóns Sigurðssonar, hafði unnizt svo á, að nú tók þjóðin sjálf að trúa á mátt sinn og möguleika stórum meir en áður. Og þó var ekki komið lengra en það, að merkur fræðimað- ur taldi um þetta leyti, að sækja þyrfti á fund íslenzkra

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.