Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.10.1932, Page 14

Skinfaxi - 01.10.1932, Page 14
138 SKINFAXI Og enn má telja það, að þarna fundu áhugamenn- irnir hver annan, og þá einkum þeir, sem fremsl fóru. Varð það til þess, að þessir menn héldust í hendur þeg- ar út í lífið kom, þegar við tóku störf hins fulltíða manns sem borgara í þjóðfélaginu. Ungmennafélögin eru ópólitísk. En fánamálið létu þau til sin laka frá fyrslu tíð. Töldu það hafið yfir alla flokka! Enda fylgdu því máli eigi aðeins heilir stjórnmálaflokkar, heldur og marg- ir mætustu menn úr öllum flokkum. Samhand Ungmennafélaga íslands var stofnað á Þingvöllum á þjóðhátíð þeirri, sem efnt hafði verið til út af heimsókn Friðriks konungs áttunda árið 1907. Kröfurnar um frelsi landsins höfðu þá verið settar í hámark. Krafan um þjóðfána var þá komin fram. Stúdentafélagið í Reykjavík hafði einkum heilzt fyr- ir málinu og Sjálfstæðisflokkur þeirra tima virtist fylgja málinu fast. Þegar stofnfundur Ungmennasambandsins hófst, var liinn ólöghelgaði þjóðfáni dreginn að hún og fána- stönginni skolið í völlinn, ]>ar sem fundurinn skyldi standa. Kom þá einn af alþingismönnum, vinsæll í liópi hinna ungu manna, maður sem veitt hafði sjálfu fána- málinu fylgi, með tilmæli um að íslenzki fáninn yrði dreginn niður. Mun það hafa átt að vera nærgætni við konunginn. Þessu var neitað. Var þá farið fram á það, að Ungmennafélögin létu sér nægja lítinn fána, áþekkan þeim, sem blakti á hinni miklu tjaldbúð Sjálfstæðisflokksins, slíkt gæli orðið skoðað sem skrautfáni. Þiví var einnig neltað. íslenzki fáninn var ekki dreginn niður.

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.