Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.10.1932, Blaðsíða 18

Skinfaxi - 01.10.1932, Blaðsíða 18
142 SKINFAXI að í þessum félagsskap liefir æskan að mestu ráðið stefmmni sjálf, en ekki látið stjórnast af eldri yfir- boðurum, sem áður voru mótaðir í ákveðnar áttir, og vildu sveigja alla aðra í sömu áttina. Yíðsvegar um þetta land, sérstaklega í sveitunum, hefir æskan kom- ið á fót ungmennafélögum, þar sem engir eldri leið- beinendur voru með; algerlega upp á eigin ábyrgð. Svo var þetla í þeim tveimur ungmennafélögum, er eg starf- aði í, og það varð áreiðanlega til þess, að við lögðum krafta okkar betur fram, fundum meira til ábyrgðar- innar og vorum óþvingaðri í starfinu; því að það er nú einu sinni svo, beinlínis frá náttúrunnar liendi, að leið- ir æsku og elli liggja ógjarna saman. Eg þykist auð- vitað vita, að hægt væri að forðast ýmsa árekstra fyr- ir leiðbeiningar og stjórn hinna eldri, en tel hina sjálf- stæðu reynslu og starf einstaklinganna miklu meira virði en það, að komast lijá árekstrum. Eftir því scm árin liða, sannfærist eg um það betur og betur, að mesta hættan, sem vofir j'fir liverjum ein- asta félagsskap, er sú, að verða gamall. Með ]jví meina eg ekki það, að stofnunin mégi ekki eldast að árum, það er óhjákvæmilegt, heldur liitt, að hún stirðni ekki utan um æskubugsjónir sínar, því liugsjónir eldast, eins og allt annað og lífið ber þær í burtu með sér. Bezta ráðið til að koma i veg fyrir þelta, lilýtur að vera það, að Iileypa æskunni til valda, því að liún er æfinlega boðberi nýs lífs og nýrra hugsjóna, og fær þá um leið tækifæri til að neyta krafla sinna við hin margvíslcgu verkefni félaganna. Sérstaldega hlýtur þetta að eiga við um allan félagsskap, sem sérstaklega er ætlaður æskunni; þar verður hún sjálf að liafa völdin, ef fé- lagsskapurinn á að koma að tilætluðum notum. Það er einmitt á þessu sviði, sem ungmennafélögin liér á landi liafa siglt svo merkilega vel á milli skcrs og báru, og því eiga ])au eflaust að miklu leyti það að þakka, að þau eru enn þá u n g. Flestir cldri félags-

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.