Skinfaxi - 01.11.1939, Qupperneq 4
84
SKINFAXI
laust. Við skulum að þessu sinni alveg sleppa því, hvað
umf. framkvæma, —• hvað þau gera fyrir einstök
iaenningarmál og hvaða leikni félagsmennirnir ná i
fundastörfum og íþróttuni þeirra vegna. En liitt skul-
um við gera okkur ljóst, að sameining fólksins um
þessi mál hefir uppeldisleg álirif, og gerir það fært um
að lifa lýðræðið. Samstarfið og samnautn hreinnar
gleði líður ekki hjá álirifalaust. Fólkið verður víðsýnna
og betra. Það finnur, að manngildið, — það sem mest
ei vert, — er eldci að öllu leyti bundið við trú og skoð-
anir. Fólkið lærir hleypidómalausa umgegni og frjáls-
lega, þrátt fyrir skoðanamun. Þvi lærist að virða sam-
vizkufrelsið.
Þannig eru ungmennafélögin máttug vörn gegn of-
beldi, kúgun og einræði, gegn byltingum og blóðsút-
hellingum. Svo er þeim brugðið um að vera ihaldssöm,
að vera róttæk, að gæla við öfgastefnur. Úr öllum liöf-
uðáttum er hrópað til þeirra, að þau séu ekki nægilega
ákveðin gegn einliverjum stjórnmálahreyfingum, af
því að þau eru trú hugsjón lýðræðisins. Þeir þröng-
sýnu menn, sem vilja löghelga óskeikulleika sinn,
þykjast alltaf vanmetnir innan þeirra. Þeir, sem þykj-
ast bornir til andlegra forréttinda, fá þar ekki þá á-
lieyrn sem þeim líkar. Ungmennafélögin vilja ekki selja
sig til flokksþjónustu. Þau vilja vera almennur, lýð-
ræðislegur uppeldisfélagsskapur í þjónustu menning-
arinnar.
Ungmennafélagar! Yið skulum starfa öruggt og
drengilega fyrir stjórnmálaflokk okkar, liver sem hann
er. En við skulum engu að síður sameinast í félagsskap
okkar í þágu heilbrigðrar lífsgleði og liins kreddulausa
uppeldis. Tökum aldrei neina páfatrú. Og verum trú
lunni frjálsu samvizku.