Skinfaxi - 01.11.1939, Síða 12
92
SKINFAXI
kvæðisrétt til allra kosninga, oröiö embættismenn,
þingmenn og ráðherrar.
Réttur þeirra til allra landsins gagna og gæða tak-
markast af því einu, að hann sé heimill landsins eigin
börnum.
Vér höfum i orði kveðnu sömu réttindi í Danmörku
og Danir hafa hér. En sá réttur er oss lítilsvirði. —-
Danmörk er lítið land og þéttbýlt. Og fiskimiðin við
strendur hennar eru lítilsverð i samanburði við íslenzk
fiskimið.
Danir eru 33 sinnum fjölmennari en ísle'ndingar.
Þegar litið er á fólksfjölda landanna veitir sam-
bandslagasamningurinn Dönum 33 sinnum meiri rétt-
indi en fslendingum. Ef litið er á aðrai- ástæður, svo sem
stærð og þáttbýli landanna, auðmagn þeirra o. fl. þess
háttar, er réttindamunurinn e'nn meiri.
6. gr. fjallar því ekki um jafnrétti, heldur urn mis-
rétti. Og það er í senn: hættulegt fslendingum og til
vansæmdar fyrir þá.
Hættan er sú, að Danir flytjist til landsins eða not-
færi sér á annan hátt réttindi þau, er sanmingurinn
veitir þeim. Það er skylt að viðurke'nna, að Danir hafa
ekki misnotað þessa aðstöðu sína. En það sannar eng-
an veginn, að þeir noti sér þessa aðstöðu ekki á kom-
andi tímum, ef þeir hafa réttindin til þess. — Hættan
fyrir isle'nzkt þjóðerni og fyrir alla afkomu þjóðarein-
staklinganna er svo mikil, að íslendingar mega aldrei
um frjálst höfuð strjúka, fyrr en jafnréttisákvæði sam-
bandslaganna er úr gildi gengið.
Ákvæði þetta er einnig til vansæmdar íslendingum.
Sérhver þjóð þráir að eiga land sitt og ráða yfir þvi að
öllu le’yti. Með sambandslögunum hafa Danir fengið
ábýlisrétt á landinu. Vér ráðum ekki yfir þvi sjálfir,
meðan lög þessi eru í gildi. Engin þjóð hefir gert jafn
víðtækan jafnréttissamning við annað ríki, og engri