Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.11.1939, Side 15

Skinfaxi - 01.11.1939, Side 15
SKINFAXI 95 ingu ritstjórans með því að lýsa, eftir því sem eg get, viðhorfi ungmennafélaganna til hins dansk-islenzka sambands á fyrstu árum ungmennafélaganna, þegar eg var ritstjóri Skinfaxa. Ungmennafélagsaldan reis hér á landi í fullri vitund þess, að íslenzka þjóðin ætti ísland og ætlaði að gera það að veglegu framtíðarheimili sínu. Hér var undir eins árekstrarefni við dönsku yfirráðastefnuna, sem vildi hafa Island sem undirlægju Danme'rkur. Islenzku ungmennafélögin fengu geisimikla livatn- ingu frá Noregi, einmitt þegar sú frændþjóð skildi við Svía 1905 og fékk fullt frelsi. Urn sama leyti og ung- mennafélögin hófu starf sitt, ritaði Guðmundur Hann- esson hók sina Afture'lding, um að Island gæti staðið á eigin fótum, og þess vegna skilið við Dani. íslenzku Ungmennafélögin áttu með stúdentafélaginu allan heiður fyrir upptök bláhvita fánans, eða Hvitbláins, eins og Helgi Péturss nefndi hann. Og ungmennafélög- in gerðu meira en nokkur annar félagsskapur lil að vekja ást á islenzkum fána. Og þegar rauði liturinn var settur í fánann, af dansklunduðum íslendingum, eingöngu í því skyni, að heygja þann hluta þjóðarinn- ar, sem hafði vakið öldu fánamálsins, þá voru ung- mennafélagar um allt land fullir áhuga um það, að bæta siðar úr þessari dönsku kúgun og lögleiða aftur þá liti og þá fánagerð, sem fór vel í íslenzku landslagi og var i samræmi við tilfinningalif þjóðarinnar sjálfrar. Þegar eg lít yfir fyrstu árganga Skinfaxa, sé eg, að allur andi blaðsins er í þá átt, að losa um hin dönsku yfirráð á íslandi. Þar eru gagnrvnd harðlega gömul og ný afglöp Dana við að stjórna landinu. Þar er talað um kúgun Dana í verzlun, siglingum og einkum í menningu. 1 Skinfaxa frá þeim árum er ekkert orð um það, að slíta konungssambandi við Danmörku, en því meira um að slíta hin gömlu, dönsku yfirráðahönd

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.