Skinfaxi - 01.11.1939, Qupperneq 20
100
SKINFAXI
Eg vil að endingu draga saman í tillöguform liöfuð-
atriði þau, er eg hefi reynt að skilgreina hér að framan:
1. Að konungssamband okkar við Danmörku hald-
ist enn um slceið.
2. Að utanríkismál séu tekin í okkar hendur i þeim
lönduin sem viðskiptaleg þörf krefur.
3. Að sameiginlegum þegnrétti megi segja upp, af
hvoru landinu sem er, með ársfyrirvara, án þess
að samningurinn gangi að öðru leyti úr gildi.
4. Að landhelgin sé aðskilin og fjdgi húsetu livers
lands.
Þórhallur Bjarnarson.
Jón Konráösson:
Lýðræði — íélagsskapur.
Eg efast um, að allir geri sér ljóst, livaða skyldur
þeir taka sér á herðar með því, að starfa i félagi. Þótt
félög starfi að ólíkum áhugamálum, þá er það sameig-
inlegt með þeim öllum, að félagsmenn verða að leggja
fram meira og minna starf i þágu félagsskaparins,
livort sem þeir hafa beinlínis gagn af því eða ekki. Og
það meira að segja að vinna að því, sem þeir teljaóþarft.
Félög eru stofnuð í ákveðnum tilgangi, og það, sem
getið er um í lögum félagsins, er öllum Ijóst, sem i fé-
lagið ganga. Getur því ekki verið neinum blöðum um
það að fletta, að því ber að framfylgja, eftir því sem
liægt er. En svo koma ýms mál á dagskrá, smátt og
smátt. Þessi mál eru rædd á fundum, undirbúin, og þá
samþykkt eða felld, eftir þvi sem verða vill. Þau mál,
sem þannig eru samþykkt, verður auðvitað að fram-
kvæma, nema einhverjar aðstæður breytist í þá átt, að