Skinfaxi - 01.11.1939, Síða 30
110
SKINFAXI
Sigurjón Ólafsson hefir lineigzt að nýrri stefnum í
myndlist, en í'er annars sínar eigin götur, frumlegur
og sjálfstæður, og spyr hvergi um, livað Pétri eða
Páli liki betur eða verr. Myndir hans sýna ekki raun-
veruleikann, eins og liann kemur almenningi fyrir
sjónir, með öllum sínum umbúðum og aukaatriðum,
heldur það, sem fyrir listamanninum er aðalalriði þess,
sem myndin táknar, eða það, sem honum finnst vera
raunveruleikinn í raunveruleikanum. Myndirnar, sem
hér með fylgja, eru allar af verkum, sem listamaður-
inn liefir unnið síðustu tvö árin. Er þeim raðað hér i
aldursröð. Margar mynda þessara hafa verið á list-
sýningum og hlotið stórlofsamlega dóma. Einkum
hefir myndin af móður listamannsins lilotið mikið lof,
en hún var gerð sumarið 1938, er hann var siðast liér
heima. Listasafn danska ríkisins (Statens Museum for
Kunst) hefir lceypt bronsafsteypu af henni, og aðra af-
steypu hefir Jón Krabbe sendiherrafulltrúi gefið ís-
lenzka listasafninu. Fyrir þá mynd fékk listamaðurinn
svonefnda Eckershergsmedalíu, og er það talin mikil
sæmd.
Skinfaxi telur sér það mikla sæmd, að Sigurjón Ól-
afsson hefir leyft honum, fyrstum íslenzkra rita, að
birta myndir af verkum sínum. Gera má að visu ráð
fyi'ir, að alþýðumenn, sem óvanir eru að skoða og
meta listaverk, eigi örðugt með að skilja sumar mynd-
irnar og fella sig við þær, svo nýstárlegar sem þær eru
i íslenzkri list. En gaman ldjóta menn samt að liafa af
að sjá, hvernig sá maður vinnur, sem nú heldur livað
mest uppi listahróðri fslands um nálæg lönd.
Fvrir beiðni sambándsstjómar U. M. F. í. hefir Sigur-
jón Ólafsson gert uppkast að nýju sambandsmerki fyrir
Ungmennafélögin. Uppkastið er til atliugunar hjá sam-
bandsstjórn.