Skinfaxi - 01.11.1939, Blaðsíða 55
SKINFAXI
135
Páll Bjarnason stundaði nám í Itennaradeild Flensborgar-
skólans í Hafnarfirði veturinn 1906—’07 og lauk kennaraprófi
um vorið. Haustið 1906 var Umf. Reykjavíkur stofnað, fyrsta
Umf. sunnanlands. Sótti Páll fundi þess um veturinn og varð
gagntekinn af hugsjónum ungmennafélaganna, svo sem mjög
kom fram í störfum hans síðan. Veturinn 1907—’8 var hann
kennari í Grímsnesi og
gekkst fyrir stofnun ung-
mennafélags' þar þegar
snemma vetrar. Iír Umf.
Hvöt í Grímsnesi meðal
elztu Umf. landsins. Næsta
ár kenndi Páll i Sandvík-
urhreppi og stofnaði þar
Umf., og þátt mun hann
hafa átt í stofnun Umf.
Stokkseyrar. En það félag
naut lengst starfskrafta
hans', því að hann var á
Stokkseyri 1909—’17, for-
stöðumaður barnaskólans
þar. Á þeim árum fór hann
fyrirlestraferðir milli umf.
á Suðurlandi, að tilhlutun
fjórðungssambandsins.og U.
M.F.Í. — 1913-’15 var hann
ritstjóri „Suðurlands", viku- Pál1 Bíarnason.
blaðs á Eyrarbakka og fór blaðamennskan vel úr hendi. Á
þeim árum þýddi hann söguna „Á refilstigum“ (The Jungle)
eftir vesturheimska þjóðmálarithöfundinn Upton Sinclair;
kom hún út á Eyrarbakka.
1917 flutti Páll til Vestmannaeyja, og var fyrst ritstjóri
blaðs, er þar kom út og „Skoggi“ hét. 1919 varð hann kennari
við barnaskólann, en tók við stjórn hans ári síðar. Hann var
ágætur skólamaður og stjórnari, skemmtilegur og vinsæll
kennari og lét sér einkar annt um alla velferð nemenda sinna
og æskulýðs yfirleitt.
í Vcstmannaeyjum lét P. B. margvísleg framfaramál og fé-
lagsstarfsemi til sín taka. Hann gekkst fyrir stofnun búnað-
arfélags í Eyjum, átti sæti i stjórn þess tíu ár og var kjörinii
heiðursfélagi þess. Var hér um þýðingarmikla starfsemi að
ræða, svo sem bezt má sjá á hinni stórfelldu og friýndarlegu