Skinfaxi - 01.11.1939, Page 65
SKINFAXI
145
Félagar mættu ekki gleyma hinum gamla og góða sið í lok
kvöklvökunuar, að einhver læsi stuttan húslestur og sungið
væri á undan og eftir. Þetta myndi setja sinn sérstaka hátið-
lega og hugljúfa hlæ á kvöldvökuna. Fólkið myndi að lokum
.sameinast fremur með þessu ráði, en öðru, áður en það héldi
heim til sín.
Það mun aldrei um of rætt, hversu félagarnir eru sundur-
leitur hópur. Þetta ættu stjórnir félaganna að athuga vel. Vit-
anlega myndu kvöldvökurnar einar ekki nægja til að sam-
eina slíkan hóp, heldur aðeins heppileg leið að settu marki,
þar sem saman færi æfing hugar og handar. — Þetta teldist
þvi fremur til skemmtiatriða innan ungmennafélagsskaparins.
Ungmennafélögin þurfa að hafa fjölþætta fræðslustarfsemi,
svo að sem flestir félagar geti fengið óskum sínum svarað i þvi
cfni, að svo miklu leyti, sem umf. eitt getur í té látið. Vitan-
lega verður slík fræðslustarfsemi að vera að miklu leyti fram-
kvæmd af ungmennafélögunum sjálfum. Hefir mér komið i
hug, að félagarnir mynduðu með sér einskonar starfshóp, eða
fræðsluhóp. Væru þeir saman i hóp, sem vildu athuga sama
cfni. Kysi liver hópur sér sinn formann, en hann lyti að öllu
ákvæðum félagsstjórnarinnar. Þeir, sem vildu kvnna sér tafl,
mynduðu taflhóp eða lelag. Þeir, sem væru sérstaklega bind-
indissinnaðir, mynduðu sitt bindindisfræðslufélag. Gæti svo
hver hópur aflað sér bóka varðandi viðfangsefni sín. Þeir,
sem vildu athuga verk eius rithöfundar eða margra, mynduðu
með sér bókmenntaflokk, sem væri sniðinn eftir leshringa-
starfsemi, sem nú tiðkast mjög, meðal ýmsra félaga. Og fleiri
slíka hópa mætti nefna, t. d. viðvíkjandi íþróttum. Hópar þess-
ir yrðu að hafa aðgang að húsi félagsins, og öðrum þeim
fækjum, sem félagið gæti í té látið.
Nú getur aftur á móti verið um skipulagða starfsemi að
ræða af hálfu félagsstjórnarinuar, s. s. ýmiskonar námskeið.
■Getur ]iá svo farið, að kennslukrafta þurfi að sækja út fyrir
ungmennnafélagið, svo um allverulegan kostnað sé að ræða
fyrir félagið. Skulu ncfnd nokkur slík dæmi.
Mörg ungmennafélög hafa haft námskeið i hverskonar
ibróttum, og fyrir atbeina einstaka umf. hafa verið haldin
námskeið fvrir börn og fullorðna, svo og námskeið í söng.
Tin félögin þurfa einnig að hafa námskeið i fleiri greinum,
einkanlega i l>ví, sem lýtur að handlagni, s. s. útskurði og
smíðum fyrir pilta, og saumanámskeið, hannyrða-, prjóna- og
vefnaðarnámskeið fyrir stúlkur.
Við skulum einkanlcga athuga smiðarnar. Það er nú, sem
10