Skinfaxi - 01.11.1939, Síða 68
148
SKINFAXI
þvi að þá væru líklegust bezt kjör. Annars skal bent á, að
tilsagað efni í skíði kostar kr. 12.00, og geta handlagnir
inenn, með litlum áhöldum, auðveldlega smíðað skíðin. Gketu
iélögin haft námskeið í þvi.
Þetta, sem eg hefi nú nefnt, lýtur allt að vetrarstarfsemi
ungmennafélaganna. Er nú ljóst, að margar i'leiri leiðir blasa
við til giftusamlegrar starfsemi, cn fleira skal hér ekki tekið.
Þá koma vor- og sumarstörf. Námslceiðs-störf meðal ung-
mennafélaga geta farið fram að vorinu, s. s. handavinnu-
námskeið, og íþróttanámskeið, en einkanlega þó sundnám-
skeið. Hafa nokkur ungmennafélög annazt um framkvæmdir
á sundnámskeiðuin fyrir börn, að vorinu til, með ágætum ár-
angri, og er vonandi, að stjórnir ungmennafélaganna beiti
sér öfluglega fyrir að efla þá starfsemi, •— og helzt að gera
suiidið að skyldunámi í skólunum. 1 þessu sambandi má
minna á samvinnu við slysavarnardeildirnar.
En einn aðalþáttur i störfum ungmennafélaganna ætti að
vera í sambandi við ræktun; ■— vorið kallar ungmennafélag-
aua út úr fundarliúsunum, til starfa, við að rækta móður
jörð. U. M. F. f. hefir gjört lofsverða tilraun til að glæða á-
huga unginennafélaganna á ræktun nytjajurta, ekki aðeins
fyrir ungmennafélagið sem heild, heldur leitazt við að ná til
hvers og eins á sínu heimili. Eigi að ræða um skipulagaða
ræktun meðal uml'., verða þeir að eiga sinn sérstaka reit,
cnnað hvort við hús félagsins, eða þá á öðrum góðum stað.
Það fyrsta, sem félögin verða að kappkosta í sambandi við
slika reiti, er að þeir séu vel girtir, annaðhvort með góðum
görðum eða girðingu. •—- Þegar ákveða á, hvað rækta skuli,
er einkum uni tvennt að velja. Annaðhvort nytjajurtir, sem
telagið, sem heild selur og aflar félagssjóði þannig tekna, og
að öðru Ieytinu að félagarnir eigi þarna einskonar skrúð-
garð, þar sem ræktuð séu blóm, jurtir, trjáplöntur o. fl. í
báðuin tilfellum vinna félagar eingöngu að gróðursctningu
og hirðingu garðanna. Fátt mun njóta eins mikils samhugar
meðal ungmennafélaga og fegrun og hirðing blómareits fé-
lags þeirra. Garðurinn er skipulagður af félögunum sjálfum
og að öllu þeirra verk. Eg kom i slíkan garð i sumar, sem
eitt ungmennafélagið í Rangárvallasýslu á. Nokkrir fél. komu
þangað með mér og sögðu, að þegar þeir kæmu þangað og
gengju um garðinn og atliuguðu viðarhríslurnar og blómin
sín, fyndist þeim þeir hitta góða vini, sem tækju á móti þeim
með brosi og hlýju. Þessi garður er ekki stór, en mjög snyrti-
lega um hann gengið, og var auðséð, að félkið unni honum.