Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.11.1939, Side 70

Skinfaxi - 01.11.1939, Side 70
150 SKINFAXI að nota tómstundir sinar sér og öSruni til gagns og gleði, og til þess að ungmennafélagsskapnum væri skipað á þann heiðurssess, sem hann á skilið i menningarlífi þjóðarinnar. Halldór Kristjánsson: A» IOKÐM. Það er ábyrgðarhluti að dæma utn félagslíf í fjarlægum sveitum og hafa aðeins komið þar snöggvast. Það er ekki víst, að ferðamaðurinn fái rétta hugmynd um félagsiífið, þar sem hann kemur gestkomandi. Ályktanir lians eru e. t. v. mótaðar af óvenjulegum atvikum eða þá meira en vert er af einstökum mönnum. Eg get því ekki ætlazt til þess, að það, sem eg segi hér, verði skoðað sem neinn óskeikull dóm- ur. Það eru aðeins ályktanir manns, sem á hröðu ferðalagi sér ekki nema sumt þess, sent máli skiptir. Þegar eg 'heimsótti eyfirzk og þingeysk ungmennafélög síðastliðinn vetur, sá eg ýmislegt, sem mér finnst ástæða til, að öðrum sé bent á. Þess vegna skrifa eg þessar lánur. Eg benti á það i Skinfaxa í fyrra, hversu hugsjónir væru hið sameinandi afl í félögum og hvernig bindindismálið sýndi okkur merki l>ess á Eyfirðingum. Á það skal þvi ekki minnzt að þessu sinni. Það er augljóst, að ýms eyfirzku félögin standa á gömlum merg. Þau hafa unnið sér viðurkenningu og hlýjan hug alls sveitafólksins, og félagsmenn þeirra eru orðnir ræktaðir til félagsstarfa. Því er það viðkunnanlegt, að vera gestur þeirra. Og sum Jieirra eru áreiðanlega með beztu umf. landsins. Svo er til dæmis um Umf. Reyni á Árskógaströnd. Það er alls ekki fjölmennt félag en þar hefir verið unnið af glæsilegum áhuga, m. a. fyrir heimavistarskóla sveitarinnar. Ár eftir ár licfir hver einasti félagsmaður komið með einlivern hlut, sem hann helir gert eða látið gera og svo hefir verið seldur fyrir það mól. Svo almenna hefir félagið gert þátttökuna til liðs því inikla máli sínu. Umf. Æskan á Svalbarðsströnd hefir mjög góða yngri deiid. Það fann eg, þegar börnin á Breiðabóli, —- 10 og 11 ára gömul, — voru að segja mér frá starfi hennar. Þau gerðu

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.