Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.11.1939, Side 74

Skinfaxi - 01.11.1939, Side 74
154 SKINFAXi Daníel Ágústínusson: Frá félagsstarfinu. Mef5 síðasta hefti Skinfaxa var sú venja tekin upp, að seg.ja Jiieira en áður frá starfsemi einstakra fclaga. Birtist þá annáll ársins 1937. Verður hér haldið áfram og birt yfirlit um árið 1938. Hefi eg orðið þess var, að yfirlit þetta er vel þegið, enda geta félögin af því kynnzt nokkuð hvert annars starfsemi, og má alltaf eitthvað af því læra. — Frásögnin er að mestu reist á skýrslum félaganna, En ítarlegri gæti hún verið, ef félögin skrifuðu sambandsstjórninni nánar, um ýmsar framkvæmdir, er |)au hafa með höndum og létu myndir fylgja, ef til eru. Umf. Drengur í Kjós: Hélt matreiðslu- og sundnámskeið að Alafossi í mánaðartíma. Nemendur 25 stúlkur. — Kennarar: Halldóra Jóhannesdóttir og ólafur Pétursson. Keþpti við Umf. Afturelding í Mosfellssveit á sameiginlegu íþróttamóti að Tjaldanesi i Mosfellsveit 21. ágúst, með 15 ])átttaköndum. Fór skemmtiferð að Hvítárvatni. Umf. Haukur í Leirársveit: Hafði hálfsmánaðar sundnám- skeið og 8 daga glímunámskeið. Sendi G keppendur á iþrótta- mót U. M. S. Borgarfjarðar. Vann 80 dagsverk við stækkun samkomuhúss síns og nokkur að vegabótum að því. Félagar eru 68. Umf. /slendingur í Andakílshreppi: Vann 145 dagsverk við sundlaugarbyggingar. Hélt 10 daga sundnámskeið með 25 þátttaköndum, og fimleikanámskeið i 30 daga. Kennari var Hallgrímur Stefánsson frá Fitjum. 5 félagar kepptu á íþrótta- móti U.M.S.B. Á bókasafn með 300 bindum. Umræðuefni m. a. trúmál, þjóðféíagsmál og atvinnumál. F’élagið hefir nýlega hafizt myndarlega til starfs eftir nokkurn svefn. Umf. Iieykdæla, Regkholtsdal: Ilélt þessi námskeið. 1. Sund- námskeið í Reykholti 8 daga, með 28 nemöndum. Kennari Þorgils Guðmundsson. — 2. 14 daga námskeið í dansi. Kenn- ari Rigmor Hansson. — 3. Glímultennsla um langan tima. Kennari Kjartan Bergmann Guðjónsson. Margir félagar kepptu á íþróttamóti U. M. S. B. Hefir félagið undanfarið unnið far- andverðlaun sambandsins fyrir hæsta stigatölu þar. Bókasafn félagsins er 717 bindi og hefir 102 notendur. Félagið átti 30 ára afmæli á árinu. Félagsmenn eru 72 og eignir um 6700,00 lcrónur. Félag þetta hlaut verðlaun frá sambandsstjórn U. M. F. í.,

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.