Skinfaxi - 01.11.1939, Side 77
SKINFAXl
157
meS veglegri samkomu, sem 300 manns tóku þátt í. Sýndi
leikritið „Almannaróm“ 4 sinnum. Ræðir um sögulegar
persónur, skáld og rithöfunda o. fl. Kennd leikfimi i okt.—
nóv. 20 piltum og 12 stúlkum. Sýning 20. nóv. Kennari Krist-
mann Jónsson.
Umf. Trausti undir Eyjafjöllum: Vann að framhaldsbygg-
ingu á húsi sínu að Heimalandi, samtals 77 dagsverk. Iljálp-
aði tveimur bændum i sveitinni, er voru að reisa nýbýli.
Hélt sundnámskeið fyrir skólabörn sveitarinnar að Selja-
völlum og íþróttanámskeið að Yzta-Skála í 14 daga með 26
nem., piltum og stúlkum. Árangur var góður, sem bezt má
sjá á því, að félagið sendi 7 keppendur á liéraðsmót Skarp-
héðins, og tóku þeir þátt i flestum íþróttagreinum, er þar var
um að ræða. Þá kepptu margir frá félaginu á íþróttamóti
Eyfellinga. Iþróttakennari var Leifur Auðunsson, Dalseli. Fé-
lagar i Trausta eru 08. Eignir eru um 6300,00 kr. Er það
samkomuhús, landeign, hlutabréf i Eimskipafélaginu o. fl.
Félag þetta hlaut verðlaun frá sambandsstjórn U. M. F. í.,
fyrir góða starfsemi á árinu. í stjórn þess eru: Leifur Auð-
unsson, Dalseli, Ólafur Sveinsson, Stóru-Mörk og Högni
Kristófersson, Stóra-Dal.
Umf. Dagsbrún, A.-Landeyjum: Hélt tvö iþróttanámskeið,
14 daga hvort. Auk leikfimi var áherzla lögð á glímu og
Múllersæfingar. Álta félagar kepptu á sameiginlegu íþrótta-
móti við Umf. Þórsmörk og þrir á Skarphéðinsmótinu. Þessi
erindi flutt m. a.: Um uppeldi (sr. Jón Skagan), Æskan og
cldra fólkið (Elimar Tómasson kennari). Rædd fjöldamörg
málefni varðandi félags- og sambandsmál. Auk þess venju-
legt málfundastarf, við ágæta fundarsókn. Alls haldnar 6
skem mtisamkomur.
Umf. Þórsmörlc í Fljótshlíð: Tók þátt i íþróttamóti með
Umf. Dagsbrún 16. júlí með 11 keppöndum. Er langt komið
með örnefnasöfnun i sinu héraði. Ilélt söngnámskeið með 19
þáttt. (karlmenn). Kennari Sigurður Ágústsson, Birtingaholti.
Rórinn starfar áfram undir stjórn Guðmundar Erlendssonar,
Núpi. Margar skemmtisamkomur haldnar.
Umf. Baldur i Hvolhreppi: Æfði 12 félagsmenn í karlakór-
söng. Kennari Sigurður Ágústsson. Á fundum rætt m. a. um
skógrækt og borin fram sú hugmynd, að 1. des. verði jafnan
hátíðisdagur hvers sveitafélags. Undirbýr samkomustað fyrir
félagið, þar sem skilyrði geta verið til skógræktar.
Umf. Hekla á Rangárvöllum: Starfrækir hókasafn í sveit-
in'n'i með 335 bindum og heldur uppi nokkru skemmtanalífi.