Skinfaxi - 01.11.1939, Page 78
158
SKINFAXI
Umf. Ásahrepps, Holtum: Farin skemmtiferð um frægustu
slaði Árnessýslu. Ilaldið söngnámskeið, 27 þátttakendur.
Kennari sami og áður. Starfrækir bókasafn með 443 bindum,
virt 1400 kr. og hefir 70 notendur.
Umf. Ingólfur, Iloltahreppi: Unnið að vegagjörð að sund-
laug félagsins og dálítið garðræktarstarf. Rekur bókasafn með^
312 bindum. Sýndi sjónleiki. F'ór skemmtiferð að Fossi á
Síðu.
Umf. Hrunamanna: Varð 30 ára 26. mai og minntist þess
með skemmtisamkomu að Flúðum. Hélt auk þess nokkrar
skemmtanir þar með sjónleikjum o. fl. Ennfremur ársmót
Hreppanna að Álfaskeiði 26. júli. Fjölmenn samkoma, með
ræðum, söng, íþróttum og dansi. Vinnur að trjárækt í garði
félagsins hjá Flúðum og að Álfaskeiði. 62 félagar; eignir um
8400,00 kr., mest fasteignir (fundahús, sundskýli o. fl.).
Umf. Skeiffamanna: Félagið hefir undanfarin ár unnið að
sundlaugarbyggingu skammt frá Húsatóftum, við heita upp-
sprettu þar. Er því verki nú að mestu lokið. í ár unnu félags-
menn 308 dagsverk. Laugin er byggð úr járnbentri stein-
steypu 8x12% m. að stærð (innan mál). Áfastir við hana
eru upphitaðir baðklefar og búningsskýli. Þá vann hver fé-
lagsmaður dagsverk i trjágarði félagsins og 25 dagsverk voru
unnin í matjurtagarði þess. Ennfremur unnu félagar mörg
dagsverk að heyskap hjá veikum bónda. Nokkur íþróttanám-
skeið voru haldin, þar sem kennt var glíma, sund, fimleikar,
frjálsar íþróttir o. fl. Þátttakendur 68. Kennari Jón Bjarna-
son frá Hlemmiskeiði, ötull og áhugasamur íþróttaleiðtogi.
Hefir félagið notið hans undanfarin ár. Karlakór var æfður
(16 menn). Leiðbeinandi Eiríkur Guðnason, Votamýri.
Iíelztu erindi: Afleiðing styrjaldar (Bergur Vigfússon).
Fræðslustarf (Klemens Þorleifsson). Rætt m. a. um les-
hringastarfsemi, jarðræktarmál, leikstarf. Margar skemmtan-
ir haldnar með góðum skemmtiatriðum. Minntist 30 ára af-
mælis 24. mai. —■ Farin skemmtiferð í Þjórsárdal, 70 þátttak-
endur. Félagar eru 83. Eignir um 6400,00 kr. Stærstu liðirnir
snndlaug og fundahús.
Félag þetta hlaut verðlaun frá sambandsstjórn U. M. F. f.
fvrir góða starfsemi á árinu. í stjórn þess eru: Hermann
Guðmundsson, Blesastöðum, Ágúst Eiríksson, Löngumýri og
Iíinrik Þórðarson, Útverkum.
Umf. fíaldur, Hraungerffshreppi: Vann 30 dagsverk að
vegagjörð og lagði 130 dagsverk í girðingu umhverfis tún
sitt. Styrkir unglingaskóla í sveitinni með fjárframlagi. Nem-