Skinfaxi - 01.11.1939, Qupperneq 81
SKINFAXI
161
sambandslaga, sniðið eftir lögum Umf. íslands. Var gjörður
póður rómur að erindinu, og um það og frumvarpið urðu þá
þegar nokkrar umræður. Var þá ákveðið að visa málinu heim
t'l félaganna til frekari athugunar og undirbúnings. Heima
i félögunum fékk frumvarpið misjafnar undirtektir, og hoð-
uðu þá þeir Brynleifur Tobíasson og Jón Sigurðsson til full-
trúafundar að Reynistað 20. febrúar 1910, til að ráða málinu
til lykta. Á þeim fundi mættu aðeins fulltrúar frá Umf. Fram-
för í Lýtingsstaðahreppi, Umf. Fram í Seyluhreppi og Umf.
Æskunni i Staðarhreppi. Eflir að fulltrúarnir höfðu rætt um
sambandsmálið, urðu þeir sammála um að fresta saniþykkt
lagafrumvapsins, en ákváðu að boða til nýs fulltrúafundar,
ef fleiri félög kynnu að senda þátttakendur í fundarhaldinu.
Þessi fundur skipaði þriggja manna bráðabirgðastjórn til að
undirbúa næsta fund og boða til hans. Voru til þess kjörnir:
Jón Sigurðsson, Reynistað, Árni J. Hafstað, Vík og Brynlcifur
Tobíasson, Geldingaholti.
II. Stofnfundur Sambandsins.
Þegar dag fór að lengja, og vorhugur fór að gjöra vart við
sig, þá vaknaði skagfirzkur æskulýður til samstarfsins á ný,
og boðaði bráðabirgðstjórnin til endanlegs stofnfundar að
Vílc í Staðarhreppi 17. apríl 1910, og má telja hann afmælis-
dag sambands ungmennfélaganna í Skagafirði.
Á fundinum voru mættir 3 fulltrúar frá U.M.F. Framför,
3 frá U.M.F. Æskunni, 1 frá U.M.F. Fram og 1 frá U.M.F.
Iiegra.
Var þá lagafrumvarpið tekið fyrst til umræðu. Urðu mikl-
ar og skiptar skoðanir um 1. grein frumvarpsins, hvort bind-
indi skyldi gjört að inntökuskilyrði í sambandið, og þegar
til atkvæðagreiðslu kom, var það samþykkt með 5:3 atkvæð-
um að hafa bindindisákvæðið. Með frumvarpinu greiddu at-
kvæði: Sigmar Jóhannsson, Steinsstöðum, Jóhannes Hannes-
son, Daufá og Haraldur Guðmundsson, allir úr Lýtingsstaða-
lireppi; ennfremur Brynleifur Tobíasson, Geldingaholti, Seylu-
hreppi, og Ólafur Sigurðsson, Hellulandi, Rípurhreppi. En
á móti fulltrúar Æskunnar, Árni J. Hafstað, Vík, Jón Sig-
urðsson, Reynistað, og Þórarinn Sigurjónsson, Bessastöðum,
allir úr Staðarlireppi. Lýstu fulltrúar Æskunnar þvi þá yfir,
að þeir myndu hætta fundarstörfum og ganga af fundinum,
fyrst svoan hefði farið, þvi að um bindindisákvæðið myndi
ekki fást samkomulag innan þeirra félags. Féll þá meirihlut-
inn frá bindindisákvæðinu, til samkomulags, og hefir svo aldr-
11