Skinfaxi - 01.11.1939, Side 84
164
SKINFAXI
Tindastóll, Sauðákróki, U.M.F. Höfðstrendingur, Hofshreppi
og U.M.F. Bjarmi i Goðdalasókn i Lýtingsstaðahreppi. Var
sá fundur vel sóttur fulltrúum, er félögin sendu, og mikill
áhugi á að endurreisa sambandið og auka samvinnu milli
félaganna á ýmsan hátt, svo sem með heimsóknum félaganna
hvers til annars og skiptum á fyrirlesurum, svo og að endur-
reisa íþróttastarfið og koma aftur á sumarmótunum, auk margs
annars, er kom til umræðu á þessum fundi.
Á næstu 14 árum, frá 1924—’38, hafði svo sambandið ýms
slörf með höndum, og má þar sérstaklega nefna íþrótta-
námskeið, er oftast voru lialdin á hverjum vetri á þessu tima-
bili, einhverstaðar á sambandssvæðinu. Voru námskeiðin venju-
lega 1—2 mánuði, og leiðbeindu kennarar i heimaleikfimi
og útiíþróttum, eftir þvi sem tök voru á. Aðalerfiðleikarnir
voru, að fá góða kennara, og þó að þeir fengjusl, urðu þeir
að hverfa frá starfinu, og að öðru, af þvi að sambandið gat
ekki launað þeim fjárhagslega eins og þurfti. Varð því árang-
urinn af þessari umferðarkennslu ekki eins góður og þurfti
að vera, og af þeim orsökum ekki tök á, að stofna fasta íþrótta-
flokka á félagssvæðinu, er tækju svo þátt í sumarmótunum.
Á námskeiðunum hafa verið kennarar: Björn Jónsson, Bæ
á Höfðaströnd, 1926; kenndi á námskeiðum i Hofsósi og á
Sauðárkróki. Stefán Runólfsson frá Ilólmi i Skaftafellssýslu
1927 og ’28; kenndi á Sauðárkróki, Hofsósi og við Steinsstaða-
laug í Lýtingsstaðahreppi, við góða aðsókn á öllum stöðun-
um, í 2 mánuði. Friðvin Þorsteinsson, Sauðárkróki, 1929; kenndi
á Sauðárkróki. Sigurður P. Jónsson, Sauðárkróki; kenndi i
Hofsósi og á Sauðárkróki. Halldór Benediktsson, Fjalli í
Sæmundarhlíð, 1932; kenndi við Steinsstaðalaug, og Björn
Bjarnason, 1932; kenndi í Hofsósi, og eins 1933. l'riðvin Þor-
sfeinsson kenndi á Sauðárkróki 1933 og Páll Sigurðsson að
Lundi í Stíflu 1933. — Þessi námskeið hafa verið styrkt þann-
ig, að sambandið greiddi kaup kennaranna, en hlutaðeigandi
félög kostuðu námskeiðin að öðru leyti. Venjulega hafa þátt-
takendur verið margir.
Þá hefir sambandið styrkt sundlaugarbyggingu að Steins-
staðalaug 1926, með kr. 500.00, enda talið sundið vera „iþrótt
íþróltanna“, og reynt að hvetja til þess, að sund yrði faslur
liður í uppeldisstarfi komandi kynslóðar. En nú sein stendur
er engin yfirbyggð sundlaug til afnota hér innan sýslu, svo
að á vetrum er erfitt um náin við þær, og er það því eitt
af framtíðarmálunum, að yfirbyggður sundskáli verði reistur.
— Þá hefir sambandið reynt að koma á fyrirlestrastarfi inn-