Skinfaxi - 01.11.1939, Blaðsíða 85
SKINFAXl
165
an félaganna, en fastir fyrirlesarar hafa ekki fengizt. Erindi
hafa venjulega verið flutt á sumarmótunum og í sambandi
við aðalfundina. En til þess að bæta nokkuð úr þessu, var
reynt að gefa út fjölritað blað, er nefndist „Iíolbeinn ungi“,
og hefir það komið út nokkrum sinnum.
Á þessum 14 árum hafa setið í stjórn sambandsins: Val-
garð Blöndal, Sauðárkróki, 1924—28; Árni Jóhannsson, Hofs-
ósi, 1924; Sigurður Ólafsson, Kárastöðum, 1924—38; Björn
Jónsson, Bæ, 1925—’29; Kristján Magnússon, Sauðárkróki, 1928
—’29; Sigurður Þórðarson, Nautabúi, 1930; Magnús Bjarna-
son, Sauðárkróki, 1930—’35; Páll Erlendsson, Þrastarstöðum,
1931—’33; Jens P. Eiríksson, Sauðárkróki, 1936—’38; Steinþór
Jónsson, Grafargerði, 1936—’38.
Til að afla sambandinu tekna, hafa héraðsmót verið háð
öðru hvoru, en ýmissa orsaka vegna, hafa þau fallið niður
nú síðari árin. En þau voru eitt af höfuð-viðfangsefnum sam-
bandsins, því að það var metnaður þess, að láta þau fara
vel úr hendi. En þau færðu aftur fjármagn til annarra sam-
eiginlegra þarfa, auk sambands-skattanna, sem eru litlir.
Á árunum 1924—’38 hefir sambandið varið til iþróttamála,
i námskeiðsstyrlcjum og til sundlaugar og áhalda, kr. 1705.95,
og hafa kr. 1425.00 af því verið styrkir til sambandsfélag-
anna. Á sama tíma hafa skattar félaganna til sambandsins
numið alls kr. 400.50. Ilefir því iþróttastarfsemi félaganna
haft allmikinn beinan hagnað af sambandsstarfseminni. Þó
hefir sambandið ekki haft efni á að verja eins miklu fé til
iþrótta og það hefði viljað og full þörf var á.
Félagsmál.
Sendimenn.
Sambandsstjórn U.M.F.f. mun gera allmikið að þvi i vetur,
að senda menn út um land í heimsókn til ungmennafélaga,
innan og utan sambands. Þegar er ráðið, að Halldór Krist-
jánsson á Kirkjubóli ferðist um Árnes-, Rangárvalla-, Stranda-,
Húnavatns- og Skagafjarðarsýslur. Hann mun einnig sækja
heim héraðsskólana að Laugarvatni, Reykholti og Revkjum i
Hrútafirði. — Þá mun Einar Kristjánsson á Leysingjastöðum
ferðast milli félaga á Vestfjörðum og sækja heim héraðsskól-
ana að Núpi og Reykjanesi. — f ráði er og, að sendimaður
frá U. M. F. í. fari um Skaftafellssýslur.