Skinfaxi - 01.04.1952, Page 1
Skinfaxi I. 1952.
ááon :
Sjáifstæðl Islands og stefna ung-
mennafélaganna.
Ég kann ekki sögu orðsins Ungmennafélög, en víst
er það, að það hefur reynzt mönnum tungutamt.
Ungmennafélög eru og mörg. Utan U.M.F.Í. og einn-
ig innan þess. Aukning félagsskaparins er mikil. Til
þeirrar aukningar liggja ýmis rök. Samheldnishugur
og minni sérhyggja. Ófriðurinn síðasti gerði ýmsa
hugsandi um þjóðernismálin. Einstakir dugnaðar-
menn sbr. Ungmennafélag Reykjavíkur og fleira mætti
jákvætt til tína. Þar má ekki gleyma íþróttalögunum,
hinni ágætu smíð Aðalsteins Sigmundssonar og fleiri
góðra manna. Þau stuðluðu að íþróttavakningu með
þjóðinni og sköpuðu viðleitni Umf. heppilegan stuðn-
ing. En einmitt í sambandi við íþróttalögin er þess
að gæta, að ýmis félög eru innan U.M.F.l. i dag, sem
fjárhagsrök á grundvelli íþróttalaganna liafa leitt í
sambandið fyrst og fremst. Þau munu sum varla
snortin hinum gamla góða ungmennafélagsanda. Ýms-
ir telja og að færri félög væri innan U.M.F.Í. ef sam-
bandið væri skeleggara i bindindismálunum og enn
munu þeir vera, sem telja að úrskurðarleysi sam-
bandsstjórnar í hernámsmálunum og viðkomandi ut-
anríkismálum okkar muni iiafa fyrirbyggt æskilega
hreinsun innan hreyfingarinnar. Niðurstaðan fyrir
sumum kynni þvi að verða: Það væri hetra að færri
1