Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.04.1952, Blaðsíða 11

Skinfaxi - 01.04.1952, Blaðsíða 11
SKINFAXI 11 Kiðastaður. Landsmótið á Eiðum. Næsta og áttunda landsmót U.M.F.Í. verður lialdið að Eiðum 5. og 6. júlí i sumar, eins og áður hefur verið skýrt frá. í síðasta hefti Skinfaxa hirlisl skrá yfir íþróttagreinar mótsins, ásamt öðrum upplýsing- um varðandi íþróttakeppnina. 1 þessu hefti gerir Þorsteinn Einarsson íþrótta- fulltrúi nánari grein fyrir keppni i starfsiþróttum eða vinnukeppni, sem tekin verður upp á þessu móti i fyrsta sinn. Hér er um merkilegt nýmæli að ræða i starfsemi un,gmennafélaganna, sem væntanlega á eftir að setja svip sinn á störf þeirra í framtíðinni. Umf. á Norðurlöndum hafa tekið j)essa starfsemi upp meira og minna og hliðstæð æskulýðsfélög í Bandaríkjunum hafa um marga áratugi haft vinnu- keppni og aðra starfsemi, sem örvar vinnugleðina og skapar aukna virðingu fyrir vinnunni. Það er því vonum seinna, sem íslenzk Umf. taka málefni jietta upp. En j)að er fyrst og fremst þeirra að veita því brautargengi.

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.