Skinfaxi - 01.04.1952, Page 11
SKINFAXI
11
Kiðastaður.
Landsmótið á Eiðum.
Næsta og áttunda landsmót U.M.F.Í. verður lialdið
að Eiðum 5. og 6. júlí i sumar, eins og áður hefur
verið skýrt frá. í síðasta hefti Skinfaxa hirlisl skrá
yfir íþróttagreinar mótsins, ásamt öðrum upplýsing-
um varðandi íþróttakeppnina.
1 þessu hefti gerir Þorsteinn Einarsson íþrótta-
fulltrúi nánari grein fyrir keppni i starfsiþróttum eða
vinnukeppni, sem tekin verður upp á þessu móti i
fyrsta sinn. Hér er um merkilegt nýmæli að ræða i
starfsemi un,gmennafélaganna, sem væntanlega á
eftir að setja svip sinn á störf þeirra í framtíðinni.
Umf. á Norðurlöndum hafa tekið j)essa starfsemi
upp meira og minna og hliðstæð æskulýðsfélög í
Bandaríkjunum hafa um marga áratugi haft vinnu-
keppni og aðra starfsemi, sem örvar vinnugleðina og
skapar aukna virðingu fyrir vinnunni. Það er því
vonum seinna, sem íslenzk Umf. taka málefni jietta
upp. En j)að er fyrst og fremst þeirra að veita því
brautargengi.