Skinfaxi - 01.04.1952, Page 9
SKINFAXI
9
staðar. Gaf land undir Laugaskóla og lét þrem börn-
um sínum eftir samastað á jörð sinni.
Mörgum er vorkunn að hafa 37firgefið átthagana.
En hörmulegt metnaðarleysi og luigsun um augna-
bliksgróða hefur valdið fyrir of mörgum, að þeir yf-
irgáfu sinn rétta samastað.
Gróðahugurinn leiðir til styrjalda. Hann skapar
eirðarleysi og rótleysi, sem er fjandsamlegt lífi og
vexti. Striðsæsingamenn tala um liugsjónir og ást á
ættjörðinni. Frelsisstríð ber okkur að heyja, en það
verður að vera starfsstrið, vaxtarræktar og gróðurs.
Við fáum ekki við ráðið, hvort stríð verður liáð eða
ekki, en við verðum að einheita okkur að innanlands-
baráttu okkar við land okkar. Við verðum að gerast
námgjarnir á þjóðarsögu okkar, hókmenntir og önn-
ur menningarverðmæti.
Pakistanbúar héldu hátíðlegan þjóðhátiðardag sinn
í sumar. Það kom fram, að þeir eiga sér ekki enn
neinn viðurlcenndan þjóðsöng, 70 millj. þjóð. Við ís-
lendingar áttum þjóðsöng fullri öld áður en við eign-
uðumst sjálfstæðið. Við íslendingar eigum sem þjóð,
fæðingarvottorð og skírnar, vottorð um mörg og ströng
próf og vegabréf sem fullvalda þjóð um lönd og
höf, þar sem handrit okkar eru hér heima og einkum
í vörzlu Dana, er höfðu okkur í fóstri um of langa
hrið og mættu þeir fá okkur þessi skilríki okkar sem
þjóðar um leið og við höfum yfirgefið fóstruna, sem
mat meir sín eigin hörn en oklcur, sem og er eðlilcgt.
Við munum sigra í þeirri baráttu, sem og i allri
sjálfstæðisharáttu olckar, en meiri öllum ritum er
sjálft landið okkar, sem er heilög ritning frelsis-
baráttunnar. Ritum þar nöfn oklcar óafmáanlegu
letri upphyggjandi ræktunarstarfs.
íslandi allt.