Skinfaxi - 01.04.1952, Qupperneq 30
30
SKINFAXI
Sundlaug Umf. Dagrenningar hjá Brautartungu.
mér finnst, að ég hafi rétl og skyldu til þess að láta
það þakklæti mitt í ljósi einmitt nú hér.
Ég þakka ungmennafélaginu Dagrenningu og stjórn
þess fyrir þann heiður og velvild að hafa hoðið mér
hingað, þegar það heiðrar fertugsára afmæli sitt.
Það er viðburður í ævi minni, sem ég mun seint
gleyma. Ég var að vísu fyrir löngu um skeið skráð-
ur félagi þess, en starfaði frekar lítið fyrir það, nema
að ég mætti nokkrum sinnum á fundum þess og sam-
komum.
Ég er það gamall, að ég man þó noklcuð tímana
tvenna, það er að segja áður en ungmennafélagið
var slofnað og eftir að það byrjaði starfsemi sina
hér. Hygg ég að þeir, sem geta staðið i mínum spor-
um, livað það snertir, séu jafnvel dómhærari um gildi
þessa félagsskapar, heldur en þeir, sem eru fæddir
á ævi ungmennafélaganna og liafa alltaf skoðað þau
sem sjálfsagðan hlut, líkt eins og andrúmsloftið. Með
tilkomu þessa félags kom nýr himinn og ný jörð hér
í sveit. Minnisstæð eru áhrifin, sem bárust inn í hér-
aðið með því. Það var einhver leiftrandi mögnun,