Skinfaxi - 01.04.1952, Blaðsíða 35
SKINFAXl
35
Þessir 13 stofnendur mættu á 40 ára afmæli félagsins. Fremri
röð, talið frá vinstri: Kristín Vigfúsdóttir, Gullberastöð-
um, Ingib jörg Magnúsdóttir, Akranesi, Sólveig Jónsdóttir, Stóra-
Lambhaga, Pálína Jónsdóttir, Brennu, Petrína Jónsdóttir, Akra-
nesi, Kristín Jónsdóttir, Litla-Botni, Jón ívarsson, Reykjavík.
— Aftari röð: Geslur Jóhannesson, Gil.jum, Gunnar Einarsson,
Brautartungu, Björn Guðmundsson, Reykjavík, Böðvar Jóns-
son, Brennu, Guðmundur Einarsson, Akranesi, Ari Guðmunds-
son, Borgarnesi.
lega til hamingju meö fertugs afmælið. Það er gam-
an að vera fjörutíu ára. Þá er lífsreynslan komin og
verkefnin blasa við fram undan. Farsælir athafna-
tímar fara í hönd.
Að lolcum vil ég beina orðum minum til þeirra,
sem í dag eru í liópi liinnar uitprennandi æsku þessa
héraðs. Þið slculuð ekki yfirgefa sveitina ykkar. Ég
veit að öll sú farsæld og hamingja, sem þið þráið
mest og óskið ykkur heitast, bíður ykkar hér.
Gæfa ykkar er falin lieima við túnfótinn ykkar.
Þar getið þið áreiðanlega fundið hana, ef þið hafið
nianndáð og þor lil að leita hennar þar.
Ég þakka ykkur kærlega fyrir.
3*