Skinfaxi - 01.04.1952, Blaðsíða 38
38
SKINFAXI
Til þess að skýra hlaupið nánar, tel ég hentugast að lýsa
starfslilaupi, sem við Sigurður Greipsson skólast.ióri Hauka-
dalsskólans létum nemendur skólans keppa í, skömmu fyrir
jól.
Vegalengd hlaupsins var rúmlega 2 km. og störfin 5.
Hlaupaleiðin ló aðallega um þýfða móa, bæði upp i inóti og
niður í móti og tvisvar var farið yfir mjóa göngubrú.
Þegar brautin (leiðin) er „lögð“, má gera það á sama hátt
og gert er í víðavangshlaupum, þ. e. a. s. með vissum milli-
bilum stungið niður veifum, stráð sagi eða steinar litaðir.
Þessi leiðarmerki ávallt höfð á vinstri liönd, þegar farið er
fram hjá þeim. Aldrei má leiðin vera það þröng, að eigi geti
þrír hlaupið samsíða.
Nú er svo um starfshlaup, að komið er fyrir vissum starfs-
stöðvum á leiðinni með vissum millibilum. Á hverri starfsstöð
er vörður, svo að þeir marka vel Ieiðina, en þurfi að hafa
sveig ó leiðinni milli stöðva, verður að marka sveiginn með
einhverju, eins og fyrr er sagt.
HAUKADALSHLAUPIÐ: .......................Nr.:
(Nafn þátttakenda)
Komu- tími Burtf.- tími Tími alls Tíminn
mín. sek.
1. Rúmmól: Fyrir hvern litra of eða van + 1 sek.
2. Þyngd: Fyrir livert kg of eða van + 10 sek.
3. Lengdarákvörðun: Fyrir hvern m. of eða
van + 5 sek.............................
4. Skilaboð: 1, 2 og 3: Fyrir livert rangt skila-
boð + 100 sek...........................
5. Þekking: Svar 1, 2 og 3: Fyrir hvert rangt
svar + 100 sek..........................
Samtals: