Skinfaxi - 01.04.1952, Síða 41
SKINFAXI
41
öllum, sem efna vilja til móts í starfshlaupi, á þessar glöggu
reglur.
Daginn eftir að námssveinar Haukadalsskólans höfðu keppt
í starfshlaupi, komu þeir til okkar Sigurðar og óskuðu ákveð-
ið eftir því að fara að nýju i starfshlaup þá um daginn.
Einnig varð ég þess oft var næstu daga, að piltarnir voru að
spyrja hver annan: „Ilve langt, hve þungt, o. s. frv., svo auð-
heyrt var að hlaupið hafði náð hug þeirra.
Við Sigurður Greipsson ræddum okkar í milli um gildi
hlaupsins og komumst að þeirri niðurstöðu, að það er marg-
þætt:
1. Eflir athygli,
2. — nákvæmni,
3. — festu, vinnur gegn flaustri,
4. — viðbragðshæfni,
og sé hafðar með vinnuþrautir, t. d. negla saman fjalir á viss-
an hátt, gróðursctja tré o. s. frv., eflist vandvirkni, en vegna
stutts undirbúnings gátum við elcki haft neitt slíkt starf, sem
krafðist verklægni og útsjónarsemi.
Slik störf verður ávallt að meta til stiga, en vart hægt að
leggja á þau beinan stærðfræðilegan útreikning. Spurningar
í starfshlaupi skulu ávallt varða eitthvað nærtækt úr atvinnu-
lífi, náttúru og þjóðlifi.
Góðir ungmennafélagar! Reynið hvern annan i starfshlaupi.
Það mun færa ykkur holla hressingu, eins og öll lilaup, á-
nægju og gleði í samveru góðra félaga — og siðast en ekki
sízt, mun það þroska ykkur til betri og fullkomnari vinnu-
afkasta.
Starfshlaupið á því rétt á sér í verkefnum ungmennafélaga.
Það verður eitt af keppnisgreinum Landsmótsins að Eiðum
næsta sumar. Búið ykkur undir þátttöku i Eiðahlaupinu.
Æfið vel undir Eiðamótið, því með æfingunum vinnum við
bezt — íslandi allt!