Skinfaxi - 01.04.1952, Qupperneq 44
44
SKINFAXI
Snúningsgildrur: Fjarlægðin milli planka í snúningsgildru sé
samræmd lengd ökutækjanna, svo að aðstaða sé jöfn fyrir
þau öll. — Fjarlægð milli framöxuls livers ökutækis og
óxuls tilheyrandi kerru sé mæld. Sé fjarlægð þessi 5.75 m,
á breidd milli plankanna, þar sem ekið er inn í gildruna að
vera 4 m. Sé fjarlægð milli öxla minni en 5.75 m, þá þreng-
ist op giidrunnar um 50% af því sem bilið milii öxla minnk-
aði, t. d. sé fjariægðin 4.75, minnkar um 1 m, þá þrengist
opið um 50 cm — verður 3.50 m. Sá liluti gildrunnar, sem
bakkað er inn í hefur ávallt sömu fjarlægð milli pianka
(3 m.;
Bökkunarplanki: Plankinn, sem bakkað er eftir sé 10 m lang-
ur og 25 cm breiður. Öll hjólin öðru megin verða að fara
eftir plankanum. Ekki má gera nýja tilraun fyrr en lijól
er komið alveg út af planka. Við hverja nýja tilraun verð-
ur að aka að stilli framan við plankann og hefja bökkun
þaðan.
Dómarar og starfsmenn: Fjórir dómarar, tveir timaverðir. —
Dómarar vinna saman tveir og tveir. Aðrir dæma akstur
í gegnum litið og bökkun eftir planka. Hinir dæma akstur
í gildru og aksturslag. — Þessir dómarar sitja i kerrunni
meðan Ieiðin er ekin. — Meginreglan í stigaútreikningi er
frádráttur frá hinni hæstu mögulegu stigatölu hvers at-
riðis (20 stig). — Auk þessara starfsmanna þarf mótsstjóra,
2 ritara til þess að reikna út stig hvers keppenda, og af-
henda útkomuna mótsstjóra, sem tilkynnir áhorfendum. Þá
þarf hliðverði — einn við hvert hlið — til þess að annast
rétta fjarlægð milli stólpa, 2 mælingamenn, til þess að
mæla ökutækin og festa á þau tréborð til breikkunar, og
2 menn til þess að aðlaga snúningsgildruna.