Skinfaxi - 01.04.1952, Side 47
SKINFAXI
47
FRETTIR og FELAG8IVIAL
íslenzkar getraunir.
Undirbúningur íslenzkra getrauna um íþróttakappleiki hélt
áfram í vetur. Menntamálaráðherra veitti Iþróttanefnd ríkis-
ins leyfi til þess aS reka þá starfsemi að settri reglugerS, meS
bréfi, dags. 13. nóv. IleglugerS var síSan samin af undirbún-
ingsnefnd íslenzkra getrauna og send menntamálaráðuneytinu
til staðfestingar. íþróttanefnd ríkisins hélt fundi meS íþrótta-
forustunni um reglugerðina og mættu á þeim m. a. stjórn U.
M.F.Í. og Í.S.Í., formenn sérsambandanna o. fl. Virtist vera
fullkominn samhugur um framgang málsins og fyrirkomulag.
Skipulagið er þannig, aS stofnunin er rekin af íþróttanefnd
rikisins og á ábyrgð íþróttasjóðs og ræSur hún framkvæmdá-
stjóra. MenntamálaráSuneytiS skipar þrjá menn í stjórn fyr-
irtækisins til þriggja ára í senn. Helmingur tekna greiðist
sem vinningar til þátttakenda, hinn helmingur fer í íþrótta-
sjóð, að frádregnum reksturskostnaði og varasjóðstillagi.
Stefnt er að því að rekstur geti hafizt síðla vetrar.
Kjartan Jóhannesson,
söngkennari frá Ásum, hefur kennt söng og orgelspil lijá
nokkrum Umf. á Suðurlandsundirlendinu á þessum vetri, að
tillilutun U.M.F.Í. eins og undanfarin ár.
í. S. í. átti 40 ára afmæli
28 janúar siSastliðinn. Var því sýndur margvislegur sómi i
tilefni af afmælinu. Var forseti þess m. a. sæmdur sænsku
Vasaorðunni.
Norrænt æskulýðsmót
verður að þessu sinni lialdið í Vraa í Norður-Jótlandi, dagana
1.—7. júli. Jens Marinus Jensen, formaður dönsku ungmenna-
félaganna, sem sér um undirbúning mótsins, hefur skrifað
U.M.F.Í. og livatt íslenzka ungmennafélaga lil að fjölmenna á
mótið. Stjórn U.M.F.Í. vill eindregið taka undir það og biður
þá ungmennaféiaga, sem hugsa sér að mæta þar, að tilkynna
það ekki seinna en 1. júní til skrifstofu U.M.F.Í.