Skinfaxi - 01.11.1953, Page 1
Skinfaxi III. 1953.
ÁLYKTra
iam
bancLráJ.-ífunclai» Li. IL/f). J). 1953 í menninyar-
ocj fjcúemiimátam.
Á síðustu misserum hefur hagur maiuia á landi hér
batnað frá þuí sem verið hefur um hríð. Er gott til
þess að vita, en þess skyldi gætt, að hin bættu lcjör
manna byggjast ekki einungis á hinu góða árferði.
Fyrir því ber oss að hyggja að því betur en að undan-
förnu, hver er hinn raunverulegi grundvöllur þjóð-
lífs vors, frelsis og menningar, en það er blómlegt og
lífrænt atvinnulíf og manndómur þegnanna og þá
sérstaklega æskulýðsins, að hann sé bindindissamur,
andlega vakandi, starfsamur, óeigingjarn og unnandi
hugsjónum.
Sérstalega ber þjóðinni að vera vel á verði um frelsi
sitt og sjálfstæði í sambandi við herstöðvamálið. Verð-
ur að vinna að því, að liinn erlendi lier fari úr landi
og beinir fundurinn því eindregið til hlutaðeigenda,
að fyrirbyggt sé allt samneyti herliðsins við íslenzkan
æskulýð. Jafnframt er lífsnauðsyn, að eflt sé heilbrigt
félags- og skemmtanalíf æskulýðsins á þjóðlegum
grundvelli, og verða öll æskulýðssamtök landsins og
hið opinbera að styðja þá viðleitni.
Beinir fundurinn því til félagssamtaka landsins,
skóla og annarra menningarstofnana, að þau vinni að
því ötullega, að þjóðlífið megi byggjast á hugsjónum
þjóðlegrar lífsskoðunar og lýðræðis.
7’