Skinfaxi - 01.11.1953, Blaðsíða 17
SKINFAXI
113
RÆÐ A
□ UÐJÓNS INGIMUNDARSDNAR,
FORMANNB UNGMENNASAMBANDS SKAGAFJARÐAR,
Á ARNARSTAPA 19. JÚLÍ 1953
Virðulegu samkomugestir.
Ungmennasamband Skaga-
fjarðar og Stephans G. nefndin
býður ykkur öll velkomin lii
þessara hátíðahalda í dag.
Margar ástæður gætu lcgið
lil þess, að við nú fjölmennum
hér á Arnarstapa. Sú ástæðan,
að hér blasir við augum okkar
eitt fegursta hérað þessa lands,
væri ærin nóg til þess að eiga
hér sameiginlega dagstund og
Guðjón Ingimundarson. njóta þess viðsýnis og þeirrar
fegurðar vítt yfir héraðið, sem
staðurinn hefur að bjóða.
Tilefni þessa mannfagnaðar er þó ekki þetta, lieldur
erum við fyrst og fremst komin hingað til þess að
minnast þess, að nú eru senn liðin hundrað ar frá
fæðingu Islendingsins og skáldsins Stephans G.
Stephanssonar, en hér í næsta nágrenni fæddisí hann
og var uppalinn. Hingað á Arnarstapann liafa spor
hans vafalaust tíðum legið. Af stapanum hefir hann
horft yfir hérað sitt —- út í víðsýnið — út í óráðna
framtíð. Við erum í dag komin liingað til þess að
minnast Stephans G. Stephanssonar með því að af-
hjúpa minnisvarða þann, er honum hefur verið reistur
á æskuslóðum hans.
8'