Skinfaxi - 01.11.1953, Side 26
122
SKINFAXI
starfsíþróttum starfi hjá U.M.F.l. og ferðist milli eiu-
stakra félaga.
b) Að unnið verði að því að fleiri greinar verði
teknar fyrir og sérstaklega þær, sem vel henta sjávar-
þorpum.
c) Að reynt verði að tengja verkefni 4 H-félaganna
við starfskeppnina.
d) Stjórn U.M.F.l. falið að athuga, hvort tök séu a
því að þiggja boð Svíans Eric Sjödin um að koma til
íslands næsta sumar og ferðast um landið og kynna
starfsemi Jordhrukara — ungdomens förbund og starf-
semi 4 H-félaganna í Svíþjóð.
e) Héraðssamböndin hvött til að koma upp slarfs-
keppni á mótum sínum eða sjálfstætt.
f) Fundurinn þakkaði landbúnaðarráðuneytinu,
Stéttarsambandi l)ænda og Búnaðarfélagi Islands þá
velvild, skilning og hjálp, sem þessir aðilar hafa sýnt
U.M.F.l. við það að koma starfsíþróttum á hér á lanai.
Norrænt æskulýðsmót.
Fundurinn fagnar þeirri ákvörðun að norrænt æsku-
lýðsmót verði haldið hér á landi næsta sumar og sam-
þykkir að kjósa 5 manna nefnd, er vinni að undirbún-
ingi þess í samráði við stjórn U.M.F.Í. Jafnframt hvetur
fundurinn íslenzka ungmennafélaga til að fjölmenna
á mótið.
Menntamál.
a) Fundurinn þakkar Sigurði Greipssyni ágætt starf
1 þágu íþrótta- og félagsmála með skólahaldi í Hauka-
dal og heitir Umf. að styðja þann skóla, m. a. með þvi
að hvetja félaga til að sælcja hann og styrkja þá til
námsdvalar þar.
b) Fundurinn mælir með því, að stofnuð verði a-
hugamannadeild við íþróttakennaraskóla ríkisins, sam-
kvæmt heimild í lögum og felur stjórn U.M.F.l. að