Skinfaxi - 01.11.1953, Page 54
150
SKINFAXI
Umf. Samhygð, Gaulverjabæjarhreppi, gróðursetti 7120 trjá-
plöntur. Hafði forgöngu um plöntun á 16 bæjum í sveit-
inni. Gerði nýja skógræktargirðingu 1 ha að stærð i landi
Efri-Gegnishóla. Fullgerði girðinguna um íþrótta- og skóg-
ræktarsvæðið hjá Félagslundi. Vann 52 dagsverk í íþróttavelli
og lagfæringu lóðar hjá Félagslundi. Lék nokkra sjónleiki og
hafði margar sýningar á ýmsum þeirra. Farin skemmtiferð í
Borgarfjörð. Þátttakendur 16. Hélt málfundanámskeið i mán-
aðartíma. Fundir 1—2 í viku. Þátttakendur 15. Bókasafn fé-
lagsins telur 540 bindi.
Umf. Stokkseyrar gróðursetti 3000 trjáplöntur með Stokks-
eyringafélaginu i Reykjavik í Ásgautsstaðaeyju. Er hún sam-
eign félaganna. Undirbýr iþróttavallarbyggingu. Gengst fyrir
tómstundakvöldvökum ásamt fleiri félögum. Farin fjölmenn
hópferð að Klaustri.
Umf. Eyrarbakka girti 1 ha lands til skógræktar og gróður-
setti þar 1000 plöntur. Fór þriggja daga skemmtiferð á Snæ-
fellsnes. Þátttakendur 30. Bókasafnið telur 2305 bindi. Útlán
1120. Safnar örnefnum í hreppnum. . Farnar hópferðir í sund
að Hveragerði.
Umf. Baldur, Hraungerðishreppi, minntist 25 ára afmælis.
Fór skemmtiferð á Þórsmörk. Þótttakendur 23. Byggir íþrótta-
völl að Einbúa. Ræktar kartöflur með 10 faldri uppskeru.
Sýndi mörg leikrit.
Umf. Skeiðamanna vann við íþróttavöll sinn. Girti skógrækt-
arsvæði við sundlaug félagsins. Gróðursetti 10 þús. trjáplönt-
ur í heimareiti hjá bændum. Styrkir skólabörn til skemmti-
ferðar á vorin. Veitir lcr. 500.00 verðlaun þeini bónda, sem
hirðir bezt fjós sitt og hlöðu.
Umf. Gnúpverja lék „Mann og konu“ og „Dollaraprinsinn“.
Gefur út fjölritað blað, sem heitir Gnúpverjinn. Gróðursetti
800 plöntur í reit félagsins að Stóra-Núpi.
Umf. Hrunamanna lék „Óvænt heimsókn“ eftir Priestley.
Byggir félagsheimili að Flúðum í samvinnu við lcvenfélagið
og hreppinn. Gefnar um 1500 vinnustundir. Gróðursetti 6000
plöntur að Álfaskeiði. Hefur tafl- og spilakvöld að Flúðum.
Hlaut 24 stig á landsmóti U.M.F.Í. á Eiðum.
Umf. Biskupstungna gróðursetti 2000 plöntur og vann 17
dagsverk að endurbótum á skógræktargirðingu félagsins. Safn-
ar örnefnum. Sýndi sjónleikinn „Við kertaljós" 5 sinnum. Fór
skemmtiferð í Brúarárskörð á hestum. Þátttakendur 73.
Umf. Laugdæla girti skógræktarsvæði sitt, 1 ha að stærð, í
Snorrastaðalandi og gróðursetti þar 2500 plöntur. Bókasafn