Skinfaxi - 01.11.1953, Page 55
SKINFAXI
151
félagsins telur 380 bindi. Farin skemmtiferð inn í Þórsmörk
og víðar um Rangárvallasýslu. Þátttakendur 32.
Umf. Hvöt, Grímsnesi, lék „Happið“ tvisvar. Hélt námskeið
í dönsum. Bókasafn félagsins telur 1250 bindi.
Umf. Ölfusinga gróðursetti 830 plöntur i reit sinn að Hjalla.
Vann að framhaldsbyggingu sundlaugarinnar í Hveragerði. Hóf
byggingu á skiðaskála í Reykjadal. Raflýsti skíðabrekku á
Reykjum.
Helztu umræðuefni félaganna voru: Raforkumál. Esperantó.
Starfsíþróttir. Hvers vegna flytur unga fólkið úr sveitunum?
Hver var merkasti landnámsmaðurinn ? Hvort er betra að vera
giftur eða ógiftur? Hvaða kostir prýða konu mest? Áfengismál.
Þurfum við presta? Hver var merkasti atburður síðasta árs?
Æskileg húsaskipan og umgengni á sveitarbæjum. Örnefna-
söfnun. í livaða sveit er bezt að búa? Hvernig á unga fólkið
að skemmta sér? Er ísland byggileg eyja? Kvenréttindi. Út-
varpið. Tízkan. Hvaða sálmur, sem þú kannt, þykir þér fal-
legastur? Ilvaða atvinnuvegur er íslendingum þýðingarmestur?
Samvinna í verzlun og framleiðslu. Ferðamenning. Skyldu-
sparnaður og fjármál.
Félag í Norðurlandi segir: „Áfengisneyzla er engin meðal
félagsmanna. Engin kona neytir tóbaks og enginn karlmaður
innan þrítugs.“ Það væri vel, að slík reglusemi og menning
ríkti sem víðast.
Þessi sambönd sendu skýrslur frá öllum félögum sínum:
U.M.S. Kjalarnesþings, Strandasýslu, Skagafjarðar og Eyjafjarð-
ar. 1 til 2 skýrslur vantar frá þessum samböndum: U.M.S.
Borgarfjarðar, Dalasýslu, S.-Þing., V.-Skaft. og Iléraðssamband-
inu Skarphéðni. Frá öðrum eru skilin lakari, en misjafnt þó.
Fyrir 1. maí ár hvert ber héraðssamböndunum að hafa sent
skýrslur frá öllum félögum sinum.
D. Á.
Hópferð Umf. til Norðurlanda.
á síðastliðnu sumri heppnaðist i alla staði ágætlega. Þátt-
takendur í förinni voru 27. Fararstjóri var Ingólfur Guðmunds-
son á Laugarvatni. Ferðin stóð yfir frá 11. júní til 2. júlí, og
var farið til Norðurlandanna þriggja, Noregs, Danmerkur og
Sviþjóðar. Létu þátttakendur í ljósi mikla hrifningu yfir för-
inni og töldu hana bæði ánægjulega og lærdómsrika.
Sökum rúmleysis í þessu hefti, verður frásögn af þessari
fyrstu hópferð U.M.F.Í. að bíða næsta heftis. Þeirri grein
fylgja myndir úr ferðinni.