Skinfaxi - 01.07.1955, Qupperneq 30
78
SIUNFAXI
VeriS hæversk og einlæg. Ei'tir að öllum spurningum hafa
verið gerð skil, þá ber sýnendum að slíta sýningunni rögg-
samlega og þakka áheyrendtun. Hafi það, som sýnt liefur
verið, vakið sérstakan áhuga áheyrenda, má bjóða þeim að
skoða lilutina nánar.
Ýmsar ábendingar um sýnikcnnslu.
1. Æfið fyrir framan spegil, ef þið eruð í vafa um fram-
konm, stellingu eða látbragð i sýnikennslu.
2. Ef sýnandi getur ekki svarað spurningu, þá getur hann
oft i þess stað vísað spyrjanda á áreiðanlegar heimildir.
3. Festa má upp lítið spjald, sem á er skráð verkefni sýn-
anda, til þess að þeir, sem seint koraa, viti livað er verið
að sýna.
4. Munið gamla málsháttinn „það verður hverjum að list,
sem liann leikur.“ Æfið þvi mjög vel.
5. Stuttar og gagnorðar skýringar gera sýninguna áhrifa-
meiri.
6. Verið látlaus í framkomu, hýr og frjálsleg og talið blátt
áfram. hað fellur áheyrendum bezt.
7. Biðjið foreldra, félagsleiðtoga, ráðunauta og aðra að horfa
á og gagnrýna sýnikennsluna.
8. Ef borðið, sem notað er við sýninguna, er of hátt til
þess að áhorfendur sjái sýningarefni, sem á því er, má
hafa spegil yfir því og beita honum þannig, að áhorfend-
ur sjái í honum það, sem á borðinu er. Stundum má lika
koma fyrir hallandi plötu á borðinu.
9. Oft er æskilegt að láta félagsformann eða annan mann
kynna sýnendur áður en sýning hefst, til þess að vekja
athygli áhorfenda.
10. Verið róteg jafnvel þótt eitthvað óvænt beri að höndum.
11. Ætlazt er til þess að sýnendur sjálfir búi út efni og tæki
fyrir sýnikennsluna.
Yfirlit um verkaskiptingu í tvímennings sýnikennslu.
Nafn: A.
I. Kynning.
1. Tilkynnið nafn sýningarinnar.
2. Kynnið sýnendur.
3. Skýrið frá ástæðum fyrir vali þessa verkefnis.
4. Félags- og starfsreynslu.
5. Kynnið fyrsta liluta sýningarinnar.