Skinfaxi - 01.07.1958, Qupperneq 14
78
SKINFAXI
/ftf CettCan^i AtarfomA
Frá sambandsráðsfundi
Ungmennafélags Islands 1958.
Sambandsráðsfundur Ungmennafélags
Islands var haldinn í félagsheimili Ung-
mennafélags Reykjavíkur dagana 27. og
28. septemher. Fundarstjóri var séra Eirík-
ur J. Eiríksson og ritarar séra Gisli Kol-
beins og Gísli Andrésson.
Helztu samþykktir fundarins voru þess-
ar:
Ungmennafélagshreyfingin á nú rúm-
lega fimm tugi ára að baki. Hún hefur á
þessu tímabili verið merkur þáttur í menn-
ingar- og félagslífi þjóðarinnar.
Sambandsráðsfundurinn beinir þeirra á-
skorun til félaganna að leggja mikla á-
herzlu á hinn menningarlega og siðhæt-
andi þátt starfseminnar. Auka ber ábyrgð-
artilfinningu félaganna að þessu leyti og
þá einkum í skemmtanalífinu. Þar er ekki
aðeins um vanda þéttbýlisins að ræða held-
ur einnig sveitanna.
Þegar tillit er tekið til stórmikilla tekna
ríkisins og margra einstaklinga af skemmt-
analífi unglinga, og þess er einnig gætt,
að heimili, skóli og kirkja virðast eklci
anna verkefni sínu á þessu sviði, ber að
leggja áherzlu á, að það opinbera styðji
menningarstarfsemi æskulýðsfélaga í
miklu ríkara mæli en nú.
Ungmennafélögin hafa leitazt við að efla
drengskap, sálfstæðis- og þjóðerniskennd
og þegnskap æskunnar í landinu. Þau hafa
verið og eru sterkur aðili að því að koma
upp veglegum félagsheimilum, íþróttavöll-
um og sundlaugum víða um land og hafa
á þann hátt unnið að því að skapa æsku-
fólki betri aðstæður til félagsstarfs og
sjálfsþroska.
Enn í dag er rík þörf fyrir starf og bar-
áttu í þágu þeirra hugsjóna, sem ung-
mennafélögin hafa hyllt frá öndverðu.
Fundurinn skorar því á ungmennafé-
laga um land allt að fylkja nú fast liði og
íslenzka erfðamenningu. Söngvinn er hann
líka og raddmaður, kveður vel rímur og
hefur lagt mikla ást við þjóðlega söng-
og tónlist.
Ríkarður er maður drenglyndur með af-
brigðum og vinfastur. Hann hefur ávallt
verið gleðimaður, haft gaman af fyndni
og sérstæðum tilsvörum og orðfæri, en al-
vörumaður er hann, viðkvæmur, en þó
karlmenni, livenær sem á reynir.
Hugsjónamaður liefur hann ávallt verið
og haft stez-ka trú á gáfur og getu íslenzku
þjóðarinnar og glæsilega framtíð hennar.
Hann hefur verið einn af „yormönnum"
Islands, og er það því sízt að ófyrirsynju,
að hann var kosinn heiðursfélagi Ung-
mennafélags Islands á fundi sambandsráðs
nú um daginn.
Ríkai'ður er lágur vexti, en þreklegur og
vel á sig kominn. Hann er fríður sýnum og
þó svipmikill, en yfir andlitið bregður fá-
gætlega tilbrigðaríkum blæ kímni og hfs-
gleði, þá er eitthvað það ber fyrir augu
hans, sem honum virðist kátlegt — eða
liann sér eitthvað, sem skírskotar til hinn-
ar ríku kímnigáfu.
Skinfaxi þakkar Ríkai-ði list hans og
störf hans öll í þágu þjóðlegrar íslenzkrar
menningar og óskar honum langra lífdaga
og góðrar heilsu.