Skinfaxi

Ukioqatigiit

Skinfaxi - 01.07.1958, Qupperneq 18

Skinfaxi - 01.07.1958, Qupperneq 18
82 SKINFAXI stað í fjórum bílum með drifi á öllum hjólum — með björgunarmenn og björg- unartæki. Rúmri einni stundu fyrir dag- mál var komið á strandstaðinn. Var hinn strandaði togari, Van der Vædin, skammt austan við skipbrotsmannaskýlið á Skarðs- fjöru og sneri stefni lil norðausturs. Veð- ur var kyrrt og lítil ylgja í sjó. Skipbrotsmenn skutu á land tveim skot- um, en án þess að lmýta i þau línu, og var það að sjálfsögðu gagnslaust. En skipstjór- inn sagði siðar, að þeir liefðu ekki haft á skipsfjöl neina nógu granna línu. Skytta björgunarsveitarinnar, Magnús Pálsson, tók nú byssuna, bjó allt út eins og vera bar, miðaði síðan og skaut og hitti í miðjan reykháf skipsins. Þar með var komin lina út í skipið. Skipbrotsmenn drógu því næst til sín dráttartóið og festu blökkina í sigluna ofan við iiöfuðböndin. Síðan drógum við út líflínuna, og festu skipverjar hana á sama stað og blökkina. Þann endann, sem var á landi, bundum við í stóran trukk. Því næst var hún strengd, og var henni haldið strengdri með trukknum, meðan á björguninni stóð. Vegalengdin milli skips og lands var um 40—50 metrar. Nú var björgunarstóllinn dreginn út í skipið og björgun síðan liafin. Þegar klukkuna vantaði kortér í niu, kom fyrsti skipbrotsmaðurinn í land og þvi næst liver af öðrum. Var svo gott í sjó, að enginn vöknaði í fót, enda líflínan mjög vel strengd. Klukkan fjörutiu mínútur gengin tiu kom fimmtándi maðurinn í land. Hann tilkynnti, að skipstjóri, stýrimaður, vél- stjóri og loftskeytamaður ætluðu ekki að yfirgefa skipið strax. Var ég þá dreginn út í togarann, ásamt Markúsi kennara Run- ólfssyni. Markús átti að vera túlkur minn og við reyna að fá mennina til að fara í land. Við gerðum skipstjóra skiljanlegt, að hann legði þarna líf sitt og manna sinna í liættu, því að fljótlega gæti breytt um átt og veður versnað. En liann kvaðst ekki mundu yfirgefa skipið fyrr en hann liefði liaft samband við skipseigendur í Belgíu. Kvaðst hann eiga von á því fljótlega um Vestmannaeyjar. Síðan fór skipstjóri fram á, að hann fengi út í skipið þá fimmtán menn, sem í land voru komnir, strax og liann óskaði þess. Hefði liann í hyggju að fá skip til að draga út togarann, sem var hlaðinn af fiski, án þess að létta hann, og sigla svo rakleitt til Belgíu. Við gerð- um hvað við gátum til að fá hann ofan af þessari fjarstæðu, en árangurslaust. Svo mjög sveið honum sú tilhugsun að missa þarna skip og hlaðafla. Við Markús fórum í land við svo búið. Ökum við nú flestir til bæja með strand- mennina, en Eyjólfur Eyjólfsson lirepp- stjóri á Hnausum, varð eftir á strandstaðn- um við fimmta mann. Við, sem lieim fór- um, komum til bæja hálfri stundu fyrir hádegi, og var skipbrotsmönnunum þegar í stað skipt niður á lieimilin.

x

Skinfaxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.