Skinfaxi - 01.07.1960, Qupperneq 17
SKINFAXI
81
-K úetttiahcfi AtarfaihA -K
> __________________________________________j
Fimmtíu ára afmælismót Skarphéðins.
Sunnudaginn 3. júlí var margt manna
saman komið í Þjórsártúni, þvi að þá
var þar háð íþróttamót til minningar um
fimmtiu ára afmæli og íþróttastarf mesta
héraðssambands landsins, Skarphéðins,
og hófst afmælismótið með hátiðadag-
skrá.
Klukkan tvö eftir liádegi fór fram guðs-
þjónusta, og sungu þar tveir kirkjukórar,
en sambandsstjóri U.M.F.I., séra Eiríkur
Eiriksson þjóðgarðsvörður predikaði. Þá
gekk nær tvö hundruð manna fylking
ungra karla og kvenna inn á íþróttasvæð-
ið eftir hljóðfalli lúðrasveitar Selfoss.
Síðan söng allur almenningur, sem þarna
var saman kominn.
Héraðsstjórinn, Sigurður Greipsson,
setti mótið, og síðan stjórnaði hann ])ví
af skörungsskap. Guðni Jónsson prófessor
og rithöfundur flutti ræðu, og hinn norski
gestur mótsins, Olaf Njösen, einn af helztu
forustumönnum ungmennafélaganna
vestanfjalls, flulti stutt en snjallt ávarp.
Höfðu stjórn U.M.F.I. og stjórn Skarp-
héðins hoðið honum til mótsins, en hann
var einn af þeim mönnum í Noregi, sem
Þetta kenndi mér að treysta aldrei á lé-
leg skotfæri eða of hlaupmjóa riffla, þeg-
ar ég átti að etja við stór og háskaleg
villidýr.
Glímugarpar, sem unnið hafa skjöldinn.
stóðu að því, að allmörgum Islendingum
var boðið til mikillar Noregsfarar sumar-
ið 1957.
Að lokinni þessari dagskrá fór fram
skjaldarglíma Skarphéðins. Þar voru 10
þátttakendur, og bar sigur úr hýtum
Greipur Sigurðsson úr Iiaukadal. Var
glimt af drengilegu kappi, og þótti glirn-
an hin hezta skemmtun.
Þá voru hópsýningar, sýndir vikivakar
og leikfimi. Um kvöldið var úthlulað verð-
launum, en daginn áður hafði farið fram á
leikvanginum keppni i frjálsum íþrótt-
um. Var keppt í hvorki fleiri né færri en
20 greinum karla og kvenna og tala kepp-
enda mjög mikil. Að lokinni úthlutun
verðlauna var dansað af fjöri.
Veður var ekki eins golt og æskilegt
hefði verið, en samt var þarna saman