Skinfaxi - 01.07.1960, Blaðsíða 19
SKINFAXI
83
greinum íþrótta við mikla þátttöku ekki
aðeins karla, heldur og kvenna. Klukkan
sex síðdegis hófst inniskemmtun, þar sem
framkvæmdastjóri U.M.F.Í. flutti ræðu,
sunginn var einsöngur, háð mælsku-
keppni og' sýndir fimleikar, og loks var
dans uin kvöldið.
Hdlfrar aldar afmæli.
Skinfaxi hefur fengið fregnir af því, að
Umf. Æskan á Svalbarðsströnd liafi orð-
ið 50 ára 7. marz s.l. Árið 1903 liafði verið
stofnað ungmennafélag með þessu nafni
á fjórum innstu bæjunum í sveitinni, og
var það síðan gert að félagi sveitarinnar
allrar. Eru varðveittar allar fundargerðir
og allir reikningar eldra félagsins.
I Umf. Æskunni liafa alls verið 272
karlar og konur, og eru 92 af þeim liú-
sett í sveitinni, en utan sveitar 148, og
32 eru látin.
Fju-stu tólf starfsárin liélt félagið fundi
sína á ýmsum bæjum i sveitinni, en tók
þátt í samkomuhúsbyggingu 1922.
Félagið hefur haldið meira en liálft
þriðja hundrað fundi, og auk árlegra og
sjálfsagðra félagsmálefna hefur það rætt
hálft fimmta liundrað mál. Það stofnaði
Sparisjóð Svalbarðsstrandar, sem nú er
orðin öflug stofnun, hefur liaft með hönd-
um trjárækt og sundkennslu og komið á
iðkun fjöhnargra íþrótta, hefur meðal
annars lagt allmikið kapp á glímu og
skíðaíþrótt. Það hefur gengizt fyrir iðk-
un skákar, haft á hendi forustu um leik-
starfsemi, gefið út sveitablöð, efnt til
söngnámskeiða og liaft forustu um ýmsa
skemmtistarfsmi. Til öflunar fjár, auk
félagsgjalda, hefur það gengizt fyrir kar-
töflurækt og komið upp heyforðabúri,
sem skyldi að öðrum þræði vera til ör-
yggisauka í sveitinni, ef mjög harðnaði
i ári.
Þarf ekki lengur að telja til þess að
séð verði, að starfsemi þessa félags hefur
verið margbreytt og þroskavænleg og lík-
leg til að efla almennan félagsanda og
samhug yngri og eldri.
Nú skipa stjórn Æskunnar: Formaður
Haukur Berg, Svalbarðseyri, ritari, Stein-
grímur Valdimarsson, Ileiðarholti, og
gjaldkeri Hreinn Ketilsson, Sunnuhlíð, en
fyrsta stjórn þess var: Ferdínand Kristj-
ánsson, Meyjarhóli, fonnaður, Tryggvi
Kristjánsson, Meyjarhóli, ritari, og Aðal-
steinn Halldórsson, Geldingsá, gjaldkeri.
Ferdinand hýr nú húi sínu í Spónsgerði,
Tryggvi á heima á Akureyri, og Aðal-
steinn er látinn. Lengst hefur starfað í
stjórn félagsins Guðmundur Benedikls-
son á Breiðabóli — eða helming alls
starfstímans.
Á níræðisafmælimi.
Blaðamaður var sendur til Jónatans
gamla á Elliheimilinu, þegar hann varð
níræður, og meðal annars sagði hann við
hann:
„Þú hefur náttúrlega verið giftur?“
„Ha?“
„Þú hefur vitaskuld verið giftur?“
Jónatan heyrði, skók sig allan og hnuss-
aði og sagði síðan:
„Giftur, nei, giftur hef ég aldrei verið,
en ég hef sosum ekki átt alltaf sjö dag-
ana sæla samt sem áður, pilti minn.“
★