Skinfaxi - 01.07.1960, Qupperneq 20
84
SKINFAXI
FRÁ SKRFISTOFU l.M.F.Í.
Heimsókn til héraðssambanda
á Vesturlandi.
Dagana 1,-—11. júlí heimsótti ég héraSs-
samböndin á Vesturlandi og ræddi við
forustumenn þeirra og einstakra ung-
mennafélaga.
Héraðssamband ungmenna-
félaga Vestfjarða.
Héraðsmót sambandsins var lialdið að
Núpi laugardag og sunnudag 2. og 3. júlí.
Þar flutti ég erindi og ræddi við forustu-
menn samhandsins. íþróttir voru fjöl-
þættar á mótinu. Veður var fagurt og fjöl-
menni mikið. Dagskrár mótsins og árang-
urs verður getið á öðrum stað í þessu
hefti.
Ég kom til Bolungavíkur, Þingeyrar,
Suðureyrar og Flateyrar og ræddi við
forustumenn ungmennafélaganna á þess-
um stöðum. Einnig kom ég til Hnífsdals
og Súðavíkur. í Hnífsdal var ungmenna-
félag, en er nú hætt störfum. Þar er nú
íþróttafélagið Reynir.
Á Súðavík ræddi ég við Halldór Magn-
ússon kennara um stofnun ungmennafé-
lags. Sigurður Guðmundsson kennari á
Núpi mun aðstoða við félagsstofnun þar.
Héraðssamband ungmennafélagp Vest-
fjarða er nú í sókn undir forustu Sigurð-
ar Guðmundssonar.
Ungmenna- og íþróttasamband
V estur-Barðastrandarsgslu.
Sambandið hefur ekki starfað í mörg
ár. Á Patreksfirði hélt ég fund 8. júli með
fulltrúum frá íþróttafélaginu Herði og
iþróttafélagi Bílddælinga. Á heimleiðinni
fann ég formann Ungmennafélags Barð-
strendinga að máli. Varð það að ráði að
undirbúa vel íþrótta- og héraðsmót næsta
vor og endurvekja þá sambandið. For-
menn þessara þriggja félaga, Ágúst Pét-
ursson Patreksfirði, Örn Gíslason Bíldu-
dal og Kristján P. Þórðarson Breiðalæk á
Barðaströnd, munu heita sér fyrir því,
ásamt stjórn UMFÍ.
Tálknfirðingar hafa hug á að stofna
ungmennafélag. Ágúst Pétursson á Pat-
reksfirði mun veita þeim lið við félags-
stofnun fyrir hönd UMFl.
Ungmennasamband tiorður-
Breiðfirðinga.
Samhandið hefur ekki starfað undan-
farin ár. Ég liélt fund í Bjarkarlundi 10.
júlí með fulltrúum frá umf. Aftureldingu,
Reykhólahreppi, umf. Unglingi, Geira-
dalshreppi, og umf. Ilvöt, Gufudalshreppi.
Fulltrúi frá umf. Vísi gat ekki mætt, en
ég átti tal við formann félagsins heima
lijá honum. Ákveðið var að undirbúa í-
þrótta- og héraðsmót næsta vor og endur-
vekja sambandið þá. Formenn félaganna,
Eysteinn Gíslason Reykhólum, Ólafur S.
Ólafson kaupfélagsstj. og Haraldur Sæ-
mundsson Kletti í Kollafirði, munu beita
sér fyrir þvi i samráði við stjórn UMFÍ. Á
fundinum mætti Gísli Gíslason í stað
Haraldar Sæmundssonar.