Skinfaxi - 01.07.1960, Síða 21
SKINFAXI
85
Ungmennasamband Dalamanna.
Sambandsfundur (aukafundur) var
lialdinn að Sælingsdalslaug 10. júlí. Þar
flulti ég erindi og ræddi um störf og
stefnu ungmennafélaganna. Aðalfundar-
efni var sundlaug sambandsins, sem þarf
nú mikilla endurbóta.
Áhugi forustumanna.
Einlægur áhugi ríkti hjá öllum for-
ustumönnum, sem ég ræddi við, um störf
og viðgang ungmennafélaganna. Ýmsa
erfiðleika þarf að yfirstíga, en til þess
þarf samstillta krafta UMFÍ, héraðssam-
bandanna og hinna einstöku ungmenna-
félaga. Ég trúi því, að ferð mín um Vest-
urland í þágu ungmennafélaganna liafi
orðið til nokkurs gagns, en reynslan verð-
ur að skera úr um það, hvort sú trú lætur
sér til skammar verða.
Fagurt var á Vestfjörðum þessa sól-
ríku júlídaga, og ferðafélagar mínir, Þor-
steinn Sigurðsson kennari i Reykjavík og
Guðmundur Löve fulltrúi hjá SÍBS, sem
einnig áttu erindi að reka á Vesturlandi,
gátu vart hetri verið. Rætt var af kappi
í gamni og alvöru og margar stökur hrutu
af vörum á hyggðaleiðum og fjallvegum,
Vestfjörðum til lofs og dýrðar. Undir
ferðalok var kveðið:
Nú er lindin þorrin þín
þekkrar Ijóðagerðar.
óðum dvínar sólarsýn,
sigur að lokum ferðar.
Heimsókn til héraðssambandanna í
II únavatnssýslu.
Fjórða og fimmta ágúst heimsótti ég
Ungmennasamband Austur-Húnavatns-
sýslu og Ungmennasamband Vestur-
Húnavatnssýslu.
Ilinn 4. ágúst var fundur haldinn á
Blönduósi. Þar mætti stjórn Ungmenna-
samhands Austur-Húnvetninga og full-
trúar frá sex ungmennafélögum, en í
samhandinu eru nú niu félög.
Hinn 5. ágúst var fundur haldinn í
Reykjaskóla með stjórn Ungmennasam-
hands Vestur-Húnavatnssýslu og fulltrú-
um frá fjórum ungmennafélögum, en í
sambandfinu eru sex félög.
Mikill áhugi ríkti á fundunum um mál-
efni ungmennafélaganna.
Stefán Ólafur Jónsson mætti á báðum
þessum fundum og ræddi um starfs-
íþróttir.
Skúli Þorsteinsson,
framkv.stj. UMFf.
Norskum ungmennafélögum
boðið heim.
Einn forustumanna norsltu ungmenna-
félaganna, Olaf Njösen frá Bygstad,
Sunnfjord, var liér i boði UMFÍ og Hér-
aðssambandsins Skarphéðins fyrstu vik-
una í júlí. Hann var gestur á 50 ára af-
mælishátíð Skarphéðins.
Kaupendur Slcinfaxa!
Ungmennafélög og einstaklingar! Mun-
ið að greiða ritið skilvíslega. Gjalddagi
er fyrir 1. des. ár hvert. Árgangurinn, 4
hefti, á kr. 30.00. Hverju uxrgmennafélagi
er sérstaklega sent eitt eintak af Skin-
faxa og þvi treyst, að félögin greiði það
skilvíslega. Það er nauðsynlegt fyrir fé-
lögin að lialda Skinfaxa saman og eiga
alltaf greiðan aðgang að honum. Skinfaxi
flytur fréttir, erindi og samþykktir frá
UMFf til félaganna.