Skinfaxi - 01.04.1962, Qupperneq 18
Frá skrífstofu UMFI
Skinfaxi.
Vegna ritstjóraskipta kom Skinfaxi því
miður ekki reglulega út á árinu 1961. Sá
árgangur er aðeins tvö hefti, sem komu út
í einu lagi. Á síðasta sambandsþingi var
stjórn U.M.F.I. gefin heimild til þess að
hækka áskriftargjald Skinfaxa, en þar
sem aðeins voru gefin út tvö hefti síðast-
liðið ár, mun stórnin ekki nota þá heimild.
Gert er ráð fyrir að gefa út sem svarar
fjórum heftum á þessu ári, en kannske
verða þau sameinuð, tvö og tvö. Áskriftar-
gjald Sinkfaxa verður þá kr. 30,00 eins og
áður. Undanfarið hefur hverju ungmenna-
félagi verið sent eitt eintak af Skinfaxa
og mun svo gert framvegis. Nokkur félög
hafa greitt heftið af frjálsum vilja og með
því styrkt útgáfu Skinfaxa. Ber sérstak-
lega að þakka þá aðstoð og vinsemd.
Skúli Þorsteinsson að störfum á skrifstofu U.M.F.Í.
Heimsóknir til héraðssambanda.
Dagana 18. til 26. ágúst heimsótti fram-
kvæmdastjóri 4 héraðssambönd, sýndi
kvikmyndir frá landsmótinu á Akureyri
1955 og Laugum 1961, flutti ávörp og
ræddi við forustumenn sambandanna:
Iiéraðssamband Strandamanna — Hólma-
vík — 19. ágúst. Ungmennasamband
Skagafjarðar — Sauðárkróki — 22. ágúst.
Ungmennasamband Austur-Húnvetninga
— Skagaströnd og Blönduósi — 23. og 24.
ágúst. Ungmennasamband Vestur-Hún-
vetninga — Hvammstanga — 25. ágúst.
Sýningargestir voru samtals á þriðja
hundrað.
hreyfingarinnar hér á landi, og ritið sjálft
hlýtur að sjálfsögðu fyrst og fremst að
fjalla um starf heildarhreyfingarinnar —
Ungmennafélags íslands. Það væri hins
vegar mjög æskilegt, að um leið og efnt er
til þessarar sögu sé safnað handritum all-
nákvæum að sögum einstakra ungmenna-
félaga og þau yrðu síðan geymd í sögulegu
heimildasafni U.M.F.I.
Ætlunin er að láta prenta eða fjölrita
eyðublöð, þar sem rita megi í aðaldráttum
starfssögu einstakra ungmennafélaga, og
senda stjórnum ungmennafélaganna með
beiðni um að skrá á eyðublöðin sögu félags
síns eftir gerðabókum og frásögn gagn-
kunnugra manna. Ég vonast til að geta
sent félögunum gögn þessi fyrir lok þessa
árs og bið menn að taka sendingunni vin-
samlega og ljúka skráningu á eyðublöðin
eins fljótt og kostur er og senda mér síðan.
Mun nánari grein verða gerð fyrir þessu í
bréfi, sem fylgja mun.
18
S K I N F A X I