Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.04.1962, Síða 22

Skinfaxi - 01.04.1962, Síða 22
I.S.I. 50 ára. Iþróttaþing I.S.l. var haldið í Reykjavík dagana 14. og 15. september sl. Þingið var sérstaklega helgað 50 ára afmæli samtak- anna. Sambandsstjóri og framkvæmda- stjóri U.M.F.I. voru gestir þingsins. Bene- dikt G. Waage baðst undan endurkjöri eft- ir langt og gott starf sem forseti I.S.Í., en í stað hans var kosinn Gísli Halldórsson arkitekt. Benedikt var kjörinn 1. heiðurs- forseti I.S.I. I vetur fóru fram hátíðahöld í tilefni af afmælinu. Þá var I.S.t. afhent borðfánastöng að gjöf með fána U.M.F.I. og þakkað gott samstarf. Vaxandi starf. Síðastliðið sumar var óvenju mikið um heimsóknir og keppni ungmennafélaga og héraðssambanda. Starfsíþróttamót í Noregi. Þriðja hvert ár er haldið meiriháttar starfsíþróttamót í einhverju Norðurland- anna. Slíkt mót fer fram í Noregi nú í septembermánuði. Á mótum þessum mæta keppendur og leiðbeinendur frá öilum Norðurlöndum. U.M.F.I. sendir 19 manna hóp til mótsins. Fararstjóri er Stefán Ól- afur Jónsson. Vinsemd þökkuð. Ekkja Þórhalls Bjarnarsonar, hins vin- sæla og virta brautryðjanda ungmennafé- laganna, frú Jónína E. Guðmundsdóttir, hefur gefið Ungmennafélagi Islands út- gáfuréttinn að söngtextabókinni Vasabók- in. Ungmennafélagi íslands er heiður að þiggja gjöfina og þakkar hlýhug og vin- semd. Ben. G. Waage. Úr skýrslum béraðssambanda 1960 Ungmennasamband Norður-Þingeyinga. Héraðsmót sambandsins var haldið 24. júlí. Þrír sambandsfélagar tóku þátt í meistaramóti Norðurlands á Akureyri. Unnið var að skógrækt í Ásbyrgi. Héraðssambandið Skarphéðinn. Héraðsþing haldið í Hveragerði 21.—22. jan. Bikarkeppni Skarphéðins fór fram í Haukadal 21. febrúar. Sigurvegari Greipur Sigurðsson. Piltar úr íþróttaskólanum í Haukadal sýndu leikfimi. Sundmót Skarp- héðins fór fram 29. maí í Hveragerði. Þátt- taka frá fimm félögum. Þrjár samkomur voru haldnar innanhúss í tilefni af fimm- 22 SKINFAXI

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.